Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 13

Skírnir - 01.08.1905, Page 13
Verzlun Islendinga og samvinnufélagsskapur. 205 irnii, og er þar talin með leiga af lánum, sem tekin liai'a verið til þess að reisa hús og verksmiðjur handa Sam- félaginu. Laun manna við Samfélagið er einungis 1 Vg^/o af verzlunarupphæðinni. Forstjóri Samfélagsins, Severin Jörgensen, hefir í laun 5600 kr. á ári. Svo eru tveir framkvæmdar- stjórar og hefir hvor þeirra 5500 kr. í laun, síðan í vetur; áður höfðu þeir 5000 kr. hvor. Aðrir menn í þjón- ustu þess hafa um 2000 kr. og þaðan af minna, einkum þeir, sem eru byrjendur. Ef einstakur kaupmaður ætti svona stóra verzlun, þá yrði gróði hans miklu meiri, því að hann hefir fyrir mark- mið að græða Til samanburðar má geta þess, að Mön- sted, smjörlíkissalinn, stærsti kaupmaður i Danmörku, hefir um eina miljón kr. í tekjur. Arstekjur hans eru taldar á skattaskránni 800000 kr. Maður sá, sem hann lætur stjórna smjörlíkisverksmiðju sinni í Englandi, hefir 200000 kr. í laun á ári. Einn af helztu mönnum hans hefir 85000 kr. í laun, og tveir menn aðrir í þjónustu hans hafa það eða meira. Ef Mönsted léti sér nægja sömu laun og Severin Jörgensen, þá mætti skifta miklu fé, sem væri hreinn ágóði, á milli viðskiftamanna hans. En það er annar andi sem ræður í sameignarkaupfélagsskapnum, en á meðal kaupmanna, og ern þessi dæmi nóg til að sýna mismuninn. IV. Hér á landi er samvinnufélagsskapur hafinn þar sem sameignarrjómabúin eru. Það er ágæt byrjun. Þau kenna mönnum hve hreinlætið er dýrmætt, og þau kenna mönnum félagsskap, venja menn á samvinnu. En eflaust þarf að koma á fullkomnum félagsskap á milli rjómabúanna til þess að selja smjörið. Þau þurfa öll að stofna eitt útflutningssamfélag og hafa smjörsölu- búð að minsta kosti í Reykjavík. Eins og menn hafa farið að við smjörið, þurfa þeir að fara að við aðrar helztu afurðir landsins. Sveitabænd-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.