Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 33

Skírnir - 01.08.1905, Side 33
Skálholt. 225 arinnar, sem kom þangað til náms eða til að leita liam- ingjunnar, og loks mikinn skara starfsmanna og verka- tolks. Skálholt var ekki einungis höfuðból fyrir höfðingjana, sem riðu þangað heim í flakandi litklæðum, búnir heiðurs- vopnum og með frítt föruneyti, heldur einnig aumingj- ana, sem flökkuðu um bjargarlausir á hallærisárunum og leituðu þangað liiunar siðustu og vissustu liknar, velt- ust um sjálfa sig á vegunum þar í kring, og hnigu kanske örendir við vallargarðinn. Og svo öll sú glaðværð, sem að jafnaði hefir ríkt á þessu fjölmenna heimili! Og einnig þá sorg og örvænt- ing, sem líka hefir stundum gripið völdin þar. Þrisvar eyddist staðui’inn af verkafólki í svarta dauða, að því er sagt er, og stóra bólan 1706 kom þar einnig illa við. Saga Skálholts geymir því ekki síður hyldýpi sorgarinn- ar en himinn gleðinnar. En yfir öllu lífinu hvílir jafnan andi eins manns, biskupsins. Vilji hans er öllum lögum ofar, hann er þar einvaldur, bteði í andlegum og veraldlegum skiln- ingi. Hann getur frelsað eða fordæmt, blessað eða bann- fært, huggað eða hrelt — og gerir það líka. Til að sýna það, nægja tvö lítil dæmi, sem jafnframt sýna hugsunar- hátt þann er ríkti í Skálholti á mismunandi tímum. Annað er saga þriggja systkyna, er flúðu á náðir ögmund- ar biskups. Bróðirinn hafði getið börn við báðum systr- um sinum. Biskup tók hann undir vernd sína, lét hann að vísu greiða sér eitthvert fé í kyrþey, en kom honum svo undan hegningu. önnur systirin varð biskupsfrú nokkr- um árum seinna (Gísla Jónssonar)! — Hitt dæmið er raunasaga Ragnheiðar Brynjólfsdóttur. Um búskapinn í Skálhoti mætti einnig margt segja, því hann hefir ekkert smáræði verið og ekki neinum ráð- leysingja hent að vera þar ráðsmaður. Þótt Skálholt sé kostajörð, gegnir það þó furðu, að hún skyldi geta fætt allan þann búpening, sem þar var að jafnaði. Jón próf. Halldórsson telur geldfénað þann er þar var, þegar 15

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.