Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1905, Síða 81

Skírnir - 01.08.1905, Síða 81
Utlendar fréttir. 273 13. ágúst og skyldi fara fram á einum og sama degi um alt laud. Kjósetidur, er atkvæði skyldu greiða, voru nær l/2 miljón. Ekki urðu þo greidd atkvæði, er til kom, svo mörg. Með aðskilnaðinum urðu 368,200 atkvæði, en að eins 184 á móti. Fór sú atkvæða- greiðsla eins og þing Norðmanna og stjórn þóttist vita fyrir. Annað höfuðatriðið í skilyrðum Svía fyrir aðskilnaðinunt mætti megnum mótmælutn í Noregi. Það var það, að rífa skyldi niður allar víggirðingar á landamærum. Svíar eiga þar litlar eða engar víggirðingar, en Norðmenn miklar, og hafa kostað eigi litlu fé til þeirra á síðastliðnum árum. Því er þeint sárt um víggirð- ingarnar. Orsökin til þess, að þær voru bygðar, er ágreiningurinn við Svía. Norðmönnum, að miusta kosti vinstriflokknum, sem ráðin hefur haft undanfarandi, til skamms tíma, hefur lengi verið hug- fast, að sækja jafnréttiskröfur sínar á hendur Svíum með vopnurn, eða, að vera við því húnir að geta varist Svíum, ef til þyrfti að taka. Yrði nú ágreiningnum, sem var orsök til víggirðinganna, til þ’kta ráðið á friðsamlegan hátt, með aðskilnaði ríkjanna, þá er ekki sýnilegt, hverja þyðingu víggirðingarnar hafa framvegis. Um þetta mál hafa blöðin mikið rætt um alla Skandínavíu. Þykir fleirum en Svíum sem Norðmönnum séu það engir neyðarkostir, að rífa niður víggirðingar. En alment mun þó Norðmönnum vera það þvert um geð. Friðarpostulinn Björnson, allra vígvéla óvinur, hefur ritað hvassar greinar móti því, að Norðmenn séu kúgaðir til þess að eyðileggja víggirðingar sínar, er kostað hafi þá stórfé. Æsingarnar í Svíþjóð set’uðust við tillögur ríkisdagsnefndar- innar og samþykt þeirra. En í þeim fólst vantraustsyfirl/sing til stjórnarinnar og sagði þá Ramsteds-ráðaneytið strax af sér. Lunde- berg, áður varaformaður efri málstofu, myndaði nýtt ráðaneyti. Það var 2. ágúst. I þetta nýja ráðaneyti voru menn valdir með því einu marki fyrir augum, að það leiddi til lykta samningana við Norðmenn um skilnaðinn. I því eru menn af öllum flokkum, en hægrimenn hafa þar yfirhöndina. — Málið er ekki útkljáð enn. Peary heimskautsfari lagði á stað í nýja för 17. ágúst í sumar, til þess að ná norðurheimskautinu. Telur hann víst, að nú muni það loks takast. Skip hans heitir »Roosevelt«, í höfuðið á forseta Bandaríkjanna, og er það smíðað til þessarar farar og mjög ramgert. A því er loftskeytastöð. Hann fer með vistir til tveggja ára. Kona Pearys fór með honum og tvær konur aðrar. Sumir af hásetum hans eru Eskimóar. lö. sept. Þ. G. 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.