Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 18

Skírnir - 01.12.1907, Page 18
306 Stephan Gr. Stephansson. eg þekki efstu upptök þín í afdal ræktarlausum, þar helzt á sól og sumri er þurð og söngur aldrei vakinn. Þú lærðir gang í leir og urð og leikfang þitt var klakinn. Þú söngst þig framgjörn út og inn um eyði-vegu tóma, hin eina rödd var rómur þinn í ríki frosnra hljóma. Þú ranst af fjalli, — fleygðir þér í foss af hamra stöllum; og nafn sitt af þór bygði!! ber og ból í dalnum öllum. Og af þór tekur svip á sig Öll sveitin mín og þjóðiu, og þú hefir fyst og fjörgað mig og fóstrað — þú og ljóðin! Só stærra hafsins strauma vald, sé stirndur himinn fegri, þá ertu samt mitt uppáhald og öllu skemtilegri. Eg ann þér fjalls og fjarða hnoss,. með flóði og grunnstraum tærum, sem jafnvel kant að falla í foss og fljóta í iygnum værum. Og lykkjum, þ/num leiðum á, sem leiðast sumra hugum, eg aldrei gekk með græsku frá nó gramdist þínum bugum. Þvi marga fegurð leiddu í ljós þín löngu nes og grandar. Hér áttu veg að eyrarrós, að ungvið þarna handar; um flæði-lönd þú líður væð með lóttum straum og grynnist- I brunahrauni ertu æð sú eiu er slær, svo finnist.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.