Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 19

Skírnir - 01.12.1907, Page 19
Stephan G. Stephansson. 307 Þú speglar bakka, björg og fit um bjarta sumar-daga, og fulltrútt synir lag og lit, svo leir þarf ei’ að kaga. Þú speglast í þeim hulu-hjúp að hjá því sneiða vilji þó eigir nokkur dulin djúp og dökka rökkur-hylji. Frá stakri átt, þar vel-bjart^var, svo við eg bið og kanna, hvort gröfin Atla er undir þar og auður Niflunganua. Því jafnvel yndi í því felst, að á niig uokkuð reyni, og fiska dregið hef’ eg helzt úr hyljum undan steini. Og dirfð er meiri hin djúpu mið og drýgri frægð að reyna, en brotin tær að tefja við og telja í botni steina. Og rödd þín A, þó hljómi hljótt í hylsins þunga flóði, eg fann þar sorta af svarta-nótt og sólskin dypst í ljóði. Sé jökulfjallið fegra þér og frítt sem »hlaðinn draumur« í þínum bárum annað er og æðra — líf og straumur. Á sund þín vær og straumföll ströng að stara ei’ eg þreytist, sem skifta kant um svip og söng, þér sjálfri lík, þó breytist. En allra sízt þú átt við mig — þó alt só gljátt og skafið — er vetur hefir heflað þig í hálasvell og vafið. Eg hló, er sá þig hrökkva á stað 20*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.