Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1907, Side 20

Skírnir - 01.12.1907, Side 20
308 Stephan G. Stephansson. með hrannir jaka brota! En hvernig vissir þú nm það að þá var skamt til blotaí Og loks er hafðir losað þig þú lagðist söm og áður svo tær og hrein á hroðinn stig, sem heiðblár silkiþráður; sem hugsun stór og sterk og frjáls — sem styrkir mig og gleður — sem brýst í rofum ríms og máls og röngum stnðlum hleður. Eg læknum ann, en ei’ sem þér, þó al-fær sé og tærri; eg veit hans söngur indæll er; — hann a þó raddir færri. Hann kveður sætt við bakka-blóm, sem blöskra hljóðin snörpu, en kemst ei upp í öllum róm með einum streng á hörpu. Svo komdu hiklaus, farðu frjáls um fjörðinn vel og lengi, með skugga-fylgsni óss og áls, með iður, foss og strengi; með hlíð og balá á bæði lönd og bæjatúniu gróin. — Og við skulum leiðast hönd í hönd um hérað — út í sjóinn. Allir vegir liggja til Róms. Og allar ár renna í hafið. — Hannes Hafstein kemst að sömu niðurstöðu um vatns- renslið; »Hvort fer um urðargrjót eða hellur að ending fer það í djúpa hafið, í h a f i ð !« Og allir mennirnir fara líka leið: í alheimsstórveldið endalausa. — Stephan getur því sagt með sanni, að hann

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.