Skírnir - 01.12.1907, Page 39
Völuspá.
327
að h o n í síðasta vo. kvæðisins (»nú mun hon sökkvask«)
sé rétt, gera ráð fyrir því að völvan sé dauð og vakin
upp (eins og völvan í Baldrs draumum). Hefði þá líklega
Oðinn átt að vekja hana upp. En móti þessu er margt.
Fyrst er það, að eðlilegast verður að skilja 27. og 28. v.
:Svo, sem í þeim liggi áskorun Oðins að birta það sem
völvan viti og hafi séð, og jafn eðlilegt, að hún geri það
þegar í stað. I öðru lagi verður síðasta vísan óeðlileg og
torskilin, svo að segja efnislaus, þar sem hún stendur, ef
h o n væri rétt. Enn má segja, að það sé í beztu og
fylstu samræmi við þær hugmyndir, sem annars koma
fram um völur í fornum sögnum, að gera ráð fyrir því,
að völvan sé lifandi; í þeim er ætíð um lifandi völur að
ræða.
Völvan kveður sér hljóðs bæði guði og menn, sem
.saman eru komnir. Að menn séu hér saman við guðina,
-eða að skáldið hugsi sér það, má að vísu þykja furðan-
legt í fljótu bragði; en hins ber þó að gæta, að guðir og
menn heyra saman svo að segja sem eitt lið; guðir eru
verjendur manna, og það sem völvan vildi sagt hafa,
.snertir jafnmikið hvoratveggju. Þar að auki er bústaður
manna og guða sameiginlegur, Miðgarður (og Asgarður i
honum miðjum). Völvan innir þegar orsökina til, að hún
er þar stödd sem hún er, þá, að hún er kvödd til þess
af Óðni. Þar með þykist hún mega gera ráð fyrir því,
að henni verði trúað; þar að auk er ef til vill hugsun
sú undir niðri, að einmitt þess vegna sé hún sjálf friðheil-
ög og eigi að geta flutt spá sína, þótt ljót verði i sumu,
án þess að eiga- illa meðferð í vændum, eins og stundum
átti sér stað með völur. Þá minnist hún þess (í 2. v.)
hve gömul hún sé og hvað hún muni langt aftur; hún
man hina elztu jötna og þá tíð, er Yggdrasilsaskur lá
sem frækorn í jörðu. Hún lýsir allra elztu tímum (í 3. v.)
•er Ymir lifði, hinn fyrsti jötun þess kyns, og þá eflaust líka
þeim tímum, er hinir elztu niðjar hans lifðu (sbr. Vafþr.-
mál); en þá var engin »jörð« til, og er þar átt við þá jörð,
sem guðir og menn bygðu síðar, þ. e. Miðgarð, en Jöt-