Skírnir - 01.12.1907, Side 49
Voluspá.
337
Hér á eftir kemur stefið, og er það hér eiginlega að
•eins endimark þess, er á undan fer, en þó er 6. vísuorð-
ið þýðingarmikið einmitt á þessum stað (f r a m s é k
1 e n g r a).
Með 58. v. hefst síðasti þáttur kvæðisins, a-llur um
endurnýjung alls lífs og heims. Alt kemur aftur, nýfætt
svo að segja (Vafþrúðnismál fylla lýsinguna að ýmsu
leyti). Fyrst og fremst kemur ný jörð upp úr djúpinu,
eins og forðum, þegar Borssynir lyftu henni upp (4. v.);
hver valdi því nú, stendur ekki, og er svo að sjá sem eitt-
hvert innra afl jarðarinnar sjálfrar knýi hana upp úr ægi;
en hún verður sem fyr, með fjöllum og fiskisælum ám og
örnum, sem sitja um laxinn í þeim. Alveg eins og í
fyrra skiftið (7. v.) koma hinir nýju æsir saman á Iða
velli, sama staðnum; ekkert sýnir betur en þetta, að höf.
hefir hugsað sér að alt endurskapast og endurnýjast í
sömu mynd. Sama lífið, friðsældar og auðs, hefst á ný;
gömlu gulltöflurnar finnast aftur (60. v.) og umtalsefni
goðanna eru atburðir þeir, sem eru nýafstaðnir, og fyrri
fjandmenn goðanna (moldþinurr = miðgarðsormur, megin-
dómar = aðaJatburðir o. s. frv.). En sá er munur á þessu
lífi og hinu fyrra, að nú eru engir jötnar til, engir óvinir
sem ofsækja goðin og sitja á svikráðum við þau. Nú er
sönn friðaröld og gullöld komin, sem aldrei mun þrjóta,
áhyggjuleysi og allsnægtir, akrarnir spretta ósánir o. s.
frv. — og nú kemur Baldur aftur; hann er nefndur fyrst-
ur hinna nýju goða, og er sennilegast, að hann verði kon-
ungur hins nýja ríkis. Nefndir eru ennfremur Höðr, sem
nú er ekki andskoti Baldrs, enda er það auðsjáanlega
ekki hugsun höf., að Höðr sé eiginlega óvinur Baldrs,
heldur er hann að eins verkfæri í höndum Loka og
því í sjálfu sér saklaus. Hvort svo hefir verið eftir
allra annara áliti er annað mál. Þeir tveir gera nú
»hertóttir Oðins« að bústað sínum; þó verður það nú
■ekki h e r-bústaður, Þau 2 v., sem á eftir fara (v e 1
v a 11 í f a r o. s. frv.) geta ekki átt heima í þessu kvæði,
íþví að Baldur er ekki »v a 11 í f i« (herguð), síst nú, er
22