Skírnir - 01.12.1907, Blaðsíða 52
340
Voluspá.
er auðséð, að það er alheiðið og byggist á foi’nri trú
Norðmanna, eins og hún þekkist af mörgum öðrum heim-
ildum. Þráðurinn í kvæðinu og efni þess er einmitt hin
óþrotlega barátta milli goða og jötna, sú sama, sem kem-
ur ljósast fram í öllum sögnum um Þór, ferðir hans og
afrek; sömuleiðis í flestum sögnum um Oðin. Annað mál
er það, hvort alt efnið í sínu fulla samræmi hefir verið
til áður en kvæðið var ort eða það er skáldið sjálft, sem
hefir skipað því svo; það er alt önnur rannsókn en sú,
sem hér er gerð, og skal hún ekki gerð hér. En þó má
segja, að flest af hinum einstöku atriðum, sem kvæðið
getur um, finst í öðrum lieimildum. Fyrir því má vel
vera að það sé höf. kvæðisins, sem fyrstur hefir búið til
alt þetta, hið snildarlega samræmi og samhengi, sem
efnið er.
Það er ekkert í kvæðinu, sem þarf að eiga rót sína í
kristnum fræðum, að minsta kosti ekki beinlínis. Eilífð-
arþráin og eftirvænting hins alfullkomna gat alveg eins
vel fæðst í heila heiðins manns, er athugaði mannlífið
skarplega. Þó er vel mögulegt, að þessar skoðanir urn
eilíft yndi eigi rót sína að rekja, og þá fram í aldar ald-
ir, til kristilegra skoðana, sem flust hafi sunnan að og upp
hafi verið teknar án þess menn vissu, hvaðan þær væru
komnar. Slíks er síst að synja. En þótt svo væri, er
kvæðið fullheiðið fvrir því. Hér skal bent á eitt atriði,
sem er svo frábrugðið kristnum trúarbrögðum sem verða
má. Refsingarnar, sem um er talað í 36—38. v., eru all-
ar f y r i r ragnarökr og eiga ekkert skilið við hinn kristna
dómsdag. Snorri flytur þetta atriði í frásögn sinni einmitt
þangað til e f t i r ragnarökr, en það gerir hann í fullu
heimildarleysi og sjálfsagt fyrir áhrif frá kristnum fræð-
um. Þetta er þýðingarmikið meginatriði.
Til lítils sýnist það vera að fara að skýra kvæðið
frá því sjónarmiði, að efnið sé um baráttu tveggja megin-
hugsjóna lífsins, hins illa og hins góða, rangláta og rétt-
láta. Þess konar skýringar eru lítils virði og þannig lag-
aðar, að þær geta ekki liaft eða fengið neitt alment gildi.