Skírnir - 01.12.1907, Blaðsíða 71
Agrip af sögu kvenréttindalireyfingarinnar.
359
ávöxt. Á 4 síðustu árum er ástandið og horfurnar alger-
lega breytt. Áhugi kvenna hefir aukist svo mjög að þær
:spara víða hvorki tíma, fyrirhöfn né fé til að ná tak-
marki sínu. Stórir sjóðir eru stofnaðir til að standast
kostnaðinn, og gefa auðugar konur og tiginbornar stórfé
til þeirra. Almenningsálitið breytist, stjórnmálamennirnir
■eru farnir að líta til kvennanna, sem góðra samverka-
manna, blöðin eru að verða málinu fylgjandi, sigurinn er
i nánd.
Aths. Ágrip þetta er því miður alt of stutt til að
gefa lesendunum hugmynd um hina stórstigu byltingu,
sem kölluð er kvenréttindahreyflngin, og með réttu er
álitin vera einhver ákafasta hreyfing þessara tíma. En
mér var því miður áskilið svo takmarkað rúm, að eg
verð að fara fljótar yfir sögu þessa máls en æskilegt hefði
verið. Og sökum þess, hve hraðfara framsóknin í málum
þessum er, eru ýmsar breytingar á orðnar siðan í haust
að grein þessi var rituð, sem ekki er hér getið.
Oleymst hefir að geta þess, þar sem talað er um
Island, að ísl. konur hafa komist að atvinnu bæði við
ritsíma- og talsímastöðvarnar — með talsvert lægri laun-
um en karlmenn.
Höf.