Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1907, Side 81

Skírnir - 01.12.1907, Side 81
Úpptök mannkynsíns. 369 hinni frægu siðalýsingu frá dögum Nerós, eftir Petronius). Trimalchio vill láta geta þess sér til hróss á legsteini sínum að hann hafi aldrei gefið neinn gaum vísiudamönn- um eða heimspekingum. Jeg þarf ekki hér að eyða orðum að því að skýra mismun þann sem er á kenningum Lamarcks og Darwins. Um Darwinskuna eru til ýmsar góðar ritgerðir á íslenzku, en ritgerðin »hreyfing og vöxtur« (Tímarit 1904 bls. 27— 48) er rituð í anda Lamarcks fremur en Darwins. Nokkur ártöl eru hér auðlærð; 1802 lét Lamarck fyrst á prenti getið skoðana sinna um uppruna tegund- anna; 1852 ritar Spencer stutta grein um allsherjar fram- þróun; er ekki óliklegt að greinar þeirrar verði minst 1952 og jafnvel síðar, þó að hún sé ekki nema nokkrar blaðsíður — ef ekki kemur yfir miðaldamyrkur aftur. 1809 kemur út dýrafræðisheimspeki Lamarcks — og Darwin; hann fæddist það ár; 1859 kemur bók Dar- wins »um uppruna tegundanna«, sú er svo mjög er fræg orðin. Darwin er hundrað sinnum ef ekki þúsund sinnum nafnkunnari en Lamarck; það má segja að Darwin hafi að nokkru leyti skorið upp þá frægð sem Lamarck hafði til sáð, og mun hann þó ekki hafa verið Lamarcks jafningi, svo ágætur maður sem hann var og ensk- ur þjóðarsómi. En hvorugur þeirra var sérlega frægðar- gjarn. Frægðin er slíkum mönnurn þá helzt nokkurs virði ef hún er skilyrði fyrir því að þeir fái starfað að rannsóknum sínum og heilaspuna. Það er þess háttar heila- spuni, og þau öfl sem af honum stjórnast, sem munu um breyta heiminum, og hefir þegar gjört, þó lítið sé enn hjá því sem líklegt er að verða muni. IX. í bókinni um uppruna tegundanna var lítið minst á uppruna mannkynsins; en seinna gaf Darwin út sérstakt rit um þetta efni. Telur hann víst, að sama verði að ganga.yfir mannkynið eins og aðrar líftegundir, og sé það 24

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.