Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 83

Skírnir - 01.12.1907, Page 83
XJpptök mannkynsins. 371 getum alls engar líkur rakið til þess — að hinn fyrsti maður hafi skapaður verið af mold eða leir, eða hvaða steinefni sem vjer nú viljum hugsa oss. Mörgum þykir eitthvað göfugra að vera að heita má beinlínis sprottinn upp úr moldinni heldur en að eiga sjer mikla og marg- liðaða iramætt af lifandi verum. Þessi tilfinning mun að mestu vera sprottin af óljósri hugsun og á líklega fyrir sjer að hverfa. Gætum að því, að frá næstu forfeðrum vorum í dýraríkinu er niður að oss — eða upp að oss, hvort sem þið viljið heldur — svo tugum þúsunda skiftir af menskum ættliðum. Það er að minsta kosti þúsund sinnum lengri ættleið [en skilur oss og fyrstu forfeður vora á landi þessu. Mætti það vera meiri frændræknin ef vjer ljetum oss svíða ávirðingar apanna, eða ófagurt sköpulag. XI. Hvílík undrasaga er þessi saga lífsins á jörðinni. Alt er í samhengi, þráðurinn óslitinn frá upphafi. En hvað er það sem veldur hinni margvíslegu þáttaskiftingu sem verður af breytingunum miklu á lifandi verum. Þar er það nú einmitt, sem Lamarck virðist hafa sjeð dýpra en Darwin, er hann lagði svo afarmikla áherzlu á við- leitni líftegundanna til að laga sig eftir breyttu umhverfi. En að vísu er þessi »lagni« mest ósjálfráð og óvita. Þó að ræturnar að vitinu sjeu jafn gamlar lífinu og eldri, þá er þó sjálft vitið svo nýtt í sögu jarðarinnar. Það kem- ur eiginlega ekki að alvöru til sögunnar fyr en með mannkyninu. Þessi nýjasta og vandasamasta smíð nátt- úrunnar er líka mesti gallagripur, en þó er það þaðan sem vjer væntum meiri umbreytinga á jörðunni og kjör- um lífsins, en öll önnur dýr til samans hafa komið í kring. Kötturinn lifir nú á dögum svipuðu lífi og fyrir 50000 árum. En maðurinn! Það er æði mikill munur. Og það er vitið, þessi ögn af viti, oft villandi þó, sem maðurinn hefir fram yfir köttinn, er öllum þessum undra- breytingum hefir komið af stað. 24*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.