Skírnir - 01.12.1907, Síða 94
382
Island árið 1907.
allar flokkadeilur lagðar á killuna meðan á þessn stóð. Konungur
hafði boðað alþingismönnum komu sina í Danmerkurför þeirra sumarið
190ö, en þeir þá boðið hingað með honum 40 ríkisþingsmönnum. Var
konungur með föruneyti sínu á einu skipi, en ríkisþingsmenn á öðru.
Tvö kerskip voru með í förinni til fylgdar. Auk ríkisþingsmanna voru
meö konungi ýmsir höfðingjar: Haraldur prins, Sonur hans, I. C. Christen-
sen forsætisráðherra, Ole Hansen landhúnaðarráðherra o. m. fl. Þess
má geta, að þrenn lög frá alþingi staðfesti konungur meðan hann
dvaldi í Reykjavík.
Dagana, sem konungur og rikisþingsmenn dvöldu hér sunnanlands,
var alþing ekki haldið, en var þess vegna lengt til 14. sept. Þingið
afgreiddi 71 lagafrumvarp og eru þau nú öll staðfest af konungi. I
þeim fjölda er, sem nærri má geta, eigi alt stórvægilegt. En mörg
liinna nýju laga eru þó merkileg, svo sem lög um stofnun kennaraskóla
í Reykjavík og lög um fræðslu barna. Hafði stjórnin lagt frumvarp til
þeirra fyrir þing 1905, en málinu var þá skotið undir álit þjóðarinnar.
Þá má telja lög um innlent brunabótafélag, um stofnun lánsdeildar við
Fiskiveiðasjóð Islands, um stofnun lagaskóla, um skipun læknahéraða
og langan lagabálk um kirkjumál og kjör presta. Mjög merkileg eru
lögin um takmörkun á eignar- og umráðarétti yfir fossum á íslandi, og
lögin um bæjarstjórn Reykjavíkur fiytja það nýmæli, að konur eru
gerðar jafnréttháar karlmönnum og kosningaréttur almennur til bæjar-
stjórnarinnar. Þá má telja námalögin og lög um innleiðslu metrakerfis-
ins í mæli og vog. Bönkunum báðum voru veitt aukin réttindi; íslands-
banka leyft að auka hlutafé sitt að miklum mun og Landsbankanum
heimilað að gefa út bankaskuldabréf, er nemi alt að 2 milj. kr. Skatta-
málin voru látin óhreifð, en framlengd lögin um hækkun á aðflutnings-
gjaldi, frá 1895, og milliþinganefnd skipuð til þess að íhuga skatta-
málin og undirbúa til næsta þings. I þá nefnd voru kosnir: Agúst
Elygenring, Rétur Jónsson, Cfuðl. Guðmundsson og Olafur Briem, en
ráðherra tilnefnir 5. manninn. 500 þús. kr. lántaka var heimiluð stjórn-
inni, ef með þyrfti, vegna ráðgerðs kostnaðar við nýjar símalagningur
um landið.
Helzta nýmæl'ið í landbúnaðarmálum, sem komist hefir í framkvæmd
á árinu, er stofnun Sláturfélags Suðurlands, og hefir það félag reist
stórt sláturhús i Reykjavik eftir útlendri fyrirmynd. En stærsta málið,
sem nú er uppi og landbúnaðinn snertir, er Flóa-áveitan. Sumarið 1906
var danskur verkfræðingur, Talbitzer, fenginn til að mæla landið, ákvarða
legu skurðanna og gera áætlun um kostnaðinn. Kom álitsskjal hans um
málið fram í vor sem leið og hyggur hann fyrirtækið tiltækilegt, þótt
dyrt verði. En hvenser framkvæmd verður á því er óséð enn.
í sjómenskunni er sú hreifing eftirtektaverðust, að menn eru að
koma upp innlendum botnvörpuskipum. Tvö félög mynduðust til þessa
hér í Reykjavík í vor sem leið; lieitir annað Alliance, og er Thor kaupm'