Skírnir - 01.08.1914, Blaðsíða 95
Úr bréfi
frá B. Grönöal til Helga Hálfðanarsonar
dags. Kaupmannahöfn 24/t 1847.
---------Eg veit annars engar fréttir, sem eg álít,.
að þér þyki gaman að heyra og vil eg hverfa frá þessu
efni og heim til íslands í huga mínum, því þar unir hann
sér ætíð bezt, og eg má segja, að aldrei hefir hér í Höfn
komið sá dagur, sem eg hefi ekki verið að hugsa heim,
eins og náttúrlegt er.
Eg þykist heyra á þér, að þú ekki þykist kunna bet-
ur við þig í Vík en á Bessastöðum. Það vissi eg fyrir
löngu, að þar mundi ekki verða betra en á hólnum, því
þar var hið bezta stæði sem menn gátu óskað fyrir kyrð-
ina og næðið.
Þá lít eg máua um miðnæturskeið
á myrkri skína himinleið:
þá langar mig að hverfa heim
um himindjúp og sjávargeim,
að horfa á geisla’, er himni frá
sér hella jökulfaldinn á,
að horfa á fjall og fagran tind
og fagurbláa, tæra lind,
að horfa á gullinn drafnar draum
er dvelur mánaljós á straum’,
að horfa á fagran fjalla dal
og foss í dimmum hamra sal,
að horfa á nætur helga ró,
er hvílir yfir landi’ og sjó. —