Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1914, Page 57

Skírnir - 01.08.1914, Page 57
íhald og framsókn. 281' hún geymir vel fengins forða, týnir engu, illu eða góðu. Og hvenær sem sú þjóð hefir manndáð til að rísa úr ösku- stónni, eins og t. d. Japanar á öldinni sem leið, þá má alt af bjarga einhverju úr gömlu rústunum og hagnýta í nýju bygginguna. Algerð breytingagirni getur aldrei komið fyrir í heil- brigðum manni eða félagi. Hún er brjálsemiskast, sem varir stutta stund, og annað hvort leiðir til bana eða batnar til fulls. Bezt er þessi vilti breytingaandi kunnur frá tímabilum í byltingum Frakka (sem leiddu af langri og óhollri kyrstöðu). Hann er ólmur, hverfandi straumur, ekkert viðnám eða hvíld, engin nýjung fundin, fyr en hún flýtur burtu og týnist í næstu umskiftaöldu. Þar er ekk- ert stöðugt nema síbreytingin sjálf. Slíka starfsaðferð getur menningin ekki notað sér til gagns, því hún bætir engu við, byggir ekkert upp, en eyðileggur alt sem fyrir verður. Hún er sjálfsmyrðandi stjórnleysi, ósjálfráð og trylt uppreist réttmætrar breytingagirni, sem verið hefir stífluð og innibyrgð í fangelsum kyrstöðunnar. En af tvennu óhæfu er þó einvöld kyrstaða illu til skárri en einvaldur byltingarandi; en svo að vel fari, verða bæði þessi öfl að starfa í sameiningu. Hvorugt getur starfað eitt saman, né án hins verið. Framsókn og íhald eru þær tvær súlur, sem halda uppi himni siðmenningarinnar. Starf ihaldsins er að geyma arfsins, eins og ormur sem liggur á gulli, og framsóknarinnar að vera á útverði, finna ný gæði, ný sannindi, dýrmætari en þau sem áður voru til, ryðja þeim til sætis og útvega þeim borgararétt undir verndarvæng íhaldsins. Þá er sifeld framför, en engin afturför eða hnignun, því að engu er kastað fyrir borð, nema betra sé fengið í staðinn. Fáeinar almennar athugasemdir má leiða af því, sem á undan er sagt. í allri samvinnu manna í heimilum, félögum, stofnunum, flokkum og ríkjum glíma framsókn og íhald um yfirráðin. I báðum fylkingunum eru skoð- anir liðsmanna í samræmi við aldur þeirra og lífs- kjör. Báðir flokkar þurfa að ráða nokkru, en þó ekkfc
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.