Skírnir - 01.08.1914, Page 100
324
Ritfregnir.
rænnar fornfræði hefir það löngum verið hlutverk Finns Jónssonar
að halda á lofti með heiðri og sóma merki vísindalegrar gætni gagn-
vart glæsilegri tízkunýbreytni. Og tíminn hefir sýnt, að hann
hafði rétt að mæla. Það er sannarlega lofsvert á þessum veðreiða-
tímum vísindanna, er hver þreytir >andríki« og ímyndunarafl við
annan, að hafa hæfileika til að skynja það úr, 3em verulega er
hægt að sanna, og láta ekki »andríkiö« gerast nærgöngulla en góðu
hófi gegnir.
Dr. Henrik Ussing.
Sorö.
Jón Svensson: Nonni. Erlebnisse eines jungen Islánders von
ihm selbst erzáhlt. Mit. 12 Bildern. Freiburg Breisgau 1913. (Jón
Sveinsson: Nonni. Æviatvik ungs íslendings, sögð af honum sjálf-
um. Með 12 myndum. 355 bls. 8vo).
Höfundur bókar þessarar er Jón Sveinsson amtsskrifara Þór-
arinssonar á Möðruvöllum, og er hann áður góðkunnur á landi hér
fyrir rit sín á danska tungu um íslenzk efni, svo sem fornöld vora
og fornsögur (Islandsblomster. Köbenhavn 1906), smáfrásagnir úr
þjóðlífi voru (í »Varden«), ferðasögu sína hér á landi (Et Ridt over
Island) o. s. frv. Enn fremur er nú að koma út eftir hann í
»Nordisk Ugeblad« bók er hann nefnir Manni, og vera munu end-
urminningar hans um Ármann bróður hans. Nú hleypir hann
nýrri bók af stokkunum, sem telja má nýjung mikla í íslenzkum
og þýzkum bókmentum, með því að hún er fyrsta frumrituð bók
af Islending á þýzka tungu í nýíslenzkum bókmentum. En þó er
hitt meira virði, að frumsmíð þessi virðist hafa tekist ágætlega.
Málið er létt og lipurt og stuttleiki þess sver sig bersýnilega í ís-
lenzku ættina, enda segir útgefandinn (Herders bókverzlun) í for-
mála sínum fyrir bókinni, að »ef til vill gæti frásögn J. Sveinsson-
ar, með því hún væri sönn íslendingsbók, verið vel fallin til að
snúa almenningi til heilbrigðrar, hreinnar og frumlegrar sagnlistar
með þeim »íslandstöfrum«, er henni fylgja«.
Innihald bókarinnar er mjög einfalt og óbrotið. Það er ferða-
saga höfundarins, sem þá var tólf vetra, frá Akureyri til Kaup-
mannahafnar haustið 1870. Svo stóð á, að hr. Boudoin, sem ís-
lendingar nefndu Baldvin hinn kaþólska, hafði bréflega boðið hon-
21*