Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1914, Blaðsíða 60

Skírnir - 01.08.1914, Blaðsíða 60
284 Áhrif klaustranna á íslandi. þar, 6 lifðu og 6 dóu. Þó sýnist það hafa verið óvenju- margt, því þegar Gizur Einarsson varð biskup voru þar einungis 5 munkar auk ábóta. Þegar Helgafellsklaustur var lagt niður voru þar 3 bræður auk ábóta (1543). Þeg- ar Möðruvallaklaustur brann (1316), sýnast hafa verið þar 5 munkar. Ormur biskup seldi klaustrið á leigu (1551) og þá var það í samningum, að 5 bræður ætti að fæða, en tæpri öld síðar setur Jón Vilhjálmsson það upp við leigjanda klaustursins að fæða 2 bræður að eins. Þetta skýrir einnig að nokkru áhrifaleysi klaustranna. Herinn var svo fámennur, auk þess hve hann var afskiftalítill. Margir voru í klaustrin komnir af lífsleiða, og löngun eftir næði, og voru því sízt í því skapi að gaurast í neinu. Fæstir munu hafa alist upp til klaustralifnaðar. Ekki er heldur unt að sjá, að nein veruleg samtök hafi verið milli klaustranna. Munkarnir skifta að vísu oft nokkuð um klaustur, eða þá að munkur úr einu klaustri varð ábóti í öðru, en slíkt hafði litla þýðingu. Ekkert eitt klaustur gat af sér hin, eins og oft var ann- arstaðar, og þó að Þingeyraklaustur sýnist oftast hafa notið einna mests álits, þá hafði hvorki það né neitt hinna klaustranna neina forustu. Og ekki verðum vér þess varir að þau beiti sér neitt til þess að hafa áhrif á fólkið. Hinar stórkostlegu byltingar í klaustrunum og voldugu umbótahreyfingar, sem hvað eftir annað gengu yfir löndin, og gáfu munklifnaðinum nýtt fjör og aukinn kraft, hafa farið fram hjá íslenzku klaustrunum, hvort sem verið hefir af útilokun frá straumunutn eða rólyndi og værð. Og íslenzka þjóðin frelsaðist alveg undan betli- munkunum, sem streymdu í þúsundum út um löndin, heim- ilislausir, prédikandi og æsandi. Það var mikið lán. En áhrifalaus hafa klaustrin á íslandi ekki verið. Þó er hér næsta óhægt um að dæma, þar sem saga klaustr- anna er hulin því kynlegasta myrkri. Oftast nær er hægt að rekja sögu þeirra upp á annála vísu, stikla á ábótunum, en þar með er því lokið, nema þar sem önnur atvik liggja til. Og sumt er alveg ofurselt getgátum eða í óvissu, eins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.