Skírnir - 01.12.1914, Side 4
340
Hefir jörðin sál?
áhrifin frá litlum bletti á fljótið alt, af því hin smáu áhrif
jafnast niður á heildina. Eins og það er um straum vatns-
ins, eins er það um straum allra járðneskra atburða, sem
felur í sér lífstörf manna, dýra og jurta. Hvað sem gerist
og hvar sem eitthvað gerist og hvernig sem eittvað ger-
ist, þá hefir það almenn áhrif á heildina auk áhrifanna á
sínum stað.
Að jörðin er líkami þar sem hvað er sniðið eftir öðru
og á saman eins og líffærin i líkama vorum, sést af ótelj-
andi dæmum. Hvað skulu fuglinum vængir, fiskinum
uggar, hestinum fætur? Loftið, vatnið, landið hefir ekki
smíðað þessi hreyfifæri, né heldur hafa þau sniðið loft,
haf né hauður eftir sér. Hvorttveggja, lífrænt og ólifrænt,
verður því að vera steypt í einu móti, orðið til í einni
steypu og eiga saman frá upphafi. I stað vængja, ugga,
fóta, mætti nefna húð, hár, hreystur, munn, nef, tennur,
tungu, eða hvert annað líffæri er vill, ytra eður innra.
Alt dýrið, öl! dýrin og mennirnir eru í öllum efnum gerð
úr garði eins og þau með lofti, vatni og jörð væru ein
heild, væru mynduð í sömu steypu, og þau þola ekki
fremur að slitna úr sambandinu en líffæri vor að losna
ur sambandi líkamans, sem þau hafa myndast í og eru
partur af.
Vér verðum að gera oss grein fyrir því, að lífrænt og
ólífrænt á saman og skilst bezt í sambandi hvað við ann-
að. Lítum á plöntuna, sem greinist annars vegar i rótina,
er virðist tiltölulega einföld, gróf og dökk ásýndum, og
hins vegar í stöngul, greinar, blöð og blóm, sem bjartari
eru yfirlits og fjölbreyttari að sjá. í þeim er unnið úr
næringarefnunum sem frá rótinni koma, og án rótarinnar
getur plantan ekki þróast og lifað. Líkt er um lífverurn-
ar og hið ólífræna, þær vinna úr þeim efnum sem þær
fá frá ólífræna heiminum, og geta ekki fremur þróast
án hans en plantan án rótarinnar. Eins og fræið er það
þróast greinist annars vegar í rótina og hins vegar í stöng-
ul, greinar, blöð og blóm, þannig hefir jarðarfræið, sem að
visu var stærra en plöntufræin, greinst í hinn lífræna og