Skírnir - 01.12.1914, Side 44
Bertha v. Suttner.
Eitt af mikilmennum keimsins er horfið oss sýnum..
Bertha y. Suttner er látin.
Bertha v. Suttner var fædd í Prag 1843. Foreldrar
hennar voru marskálkur Franz v. Kinsky greifi og kona
hans Sofía, fædd v. Körner, af kunnum skáldaættum.
Hún var sjálf skáld og söngvin mjög, og virðist dóttirin
hafa erft báða þá eiginleika.
Kinsky greifi andaðist, áður dóttir hans var í heiminn
borin, og bæði það og eins hitt að móðir hennar eigi var
af aðalsættum og fremur lítið við efni, olli því, að hún
átti við ýmsa örðugleika að stríða framan af æfinni.
Hvergi í viðri veröld getur slíkt aðalsdramb sem í Austur*
ríki, má meðal annars ráða það af orðum Metternichs: »Der
Mensch beginnt mit dem Baron«. »Þeir, sem eru óæðri
en barónar, eru ekki menn«. Aðallinn í Austurriki heimt-
aði þá 16 aðalborna forfeður bæði í föður- og móðurætt,
til þess að taka einhvern í sinn hóp, og Bertha v. Kinsky
fekk að súpa á því seyðinu, að móðir hennar var af borg-
araættum.
Þegar hún var 18 ára, fékk hún í fyrsta sinn að fara
á dansleik. Var þar bæði háaðallinn og einstaka, sem
líkt var ástatt um og hana. Bertha var óvenju fríð sýn-
um og hafði gert sér miklar vonir um að skemta sér, en
önnur varð raunin á. Hún fékk aðeins tvo dansa, og
bæði hún og móðir hennar voru látnar einar alt kveldið.
Hve sár gremja hennar hafi verið má ráða af því, að á
heimleiðinni afréð hún að játast fimtugum auðkýfing, er
hafði beðið hennar þá nýlega. Þau trúlofuðust og nú var