Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1914, Page 45

Skírnir - 01.12.1914, Page 45
Bertha v. Suttner. 381 hún tilbeðin eins og drotning í dansleikum og kærastinn sendi henni hverskonar skraut og dýrgripi. Svona leið ein vika. Þá vildi svo til eitt augnablik, að hún var ein í stofu hjá brúðgumanum tilvonandi, og varð honum þá á að kyssa hana í fyrsta sinn — og það beint á munninn. Hún rak upp hátt hljóð af viðbjóð og flýði — og daginn eftir sendi hún honum aftur allar gjafirnar og rifti heiti sinu við hann, þrátt fyrir mótmæli móður sinnar og ætt- ingja. Og nú byrjar Bertha v. Kinsky fyrir alvöru að búa sig undir að geta sjálf séð sér farborða. Hún lærir ensku, frönsku og ítölsku til hlítar. Hún les allar helztu bók- mentir Evrópuþjóðanna. Hún les sögu, efnafræði, mann- fræði, stjörnufræði -—• alt sem hún getur höndunum undir komist — en þó einkum og sér í lagi heimspeki, meira að segja jafn-strembna heimspekinga og Kant. Og þrátt fyrir allan þennan lestur er þó aðalstarf hennar að stunda söng og hljóðfæraslátt. Hún hefir óvenju fallega söngrödd, en þjáist af óskiljanlegum ótta í hvert skifti sem hún á að syngja opinberlega. Svona líður hvert árið á fætur öðru, unz hún er 28 ára að aldri. Þá kynnist hún prins Wittgenstein; hann var mjög mikill söngsnillingur, þau trúlofast, en hann deyr skömmu síðar, á ferð til Ameríku, þar sem hann ætlaði að syngja í ýmsum borgum. Bertha syrgði hann ákaft um tíma, en segir þó sjálf, að ástin hafi ekki verið búin að festa djúpar rætur i hjarta sínu. En nú var Bertha v. Kinsky orðin 30 ára, og nú var henni nauðugur einn kostur að fara að vinna fyrir sér. Eignir móður hennar voru að þrotum komnar, og ekkju- styrkur hennar var of lítill fyrir þær báðar að lifa af. Enn þá vantaði talsvert á að hún gæti komist að góðum leikhúsum sem söngkona, og hún sá þvi ráðlegast að sleppa öllum vonum í þá átt, og réðist sem kenslukona til bar- óns í Vín að nafni Suttner. Átti hún að kenna 4 gjaf- vaxta dætrum hans. Þetta varð henni til hins mesta láns. Systurnar fjórar og hún bundu með sér órjúfandi vin-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.