Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1914, Page 62

Skírnir - 01.12.1914, Page 62
398 Um lífsins elixíra og hið lifandi hold. halda, að efni frá sellunum, er komast í blóðið, geti gagn- tekið og haft áhrif á selluhópa eða líffæri, þó þau séu langt frá því líffæri þar sem efnin myndast. Heili, mæna og taugahnoður eru að vísu afar mikil- væg stjórnarlíffæri í líkamanum, en líflð og lífsstarf sell- anna er ekki eingöngu undir þeim komið. Vér þekkjum margar lægri verur sem lifa og þróast taugakerfislausar. Sellurnar geta líka lifað sínu lífi, jafnvel heil líffæri geta lifað án nokkurs sambands við taugakerfið. Þetta hafa hinar merkilegu uppgötvanir Karrels og annara líffræð- inga sannfært oss um, betur en allar fyrri rannsóknir. Það er langt síðan að menn tóku eftir því, að hægt er að geyma hjarta úr froski eða skjaldböku nokkurn tíma í saltvatni og að hjartað heldur áfram að slá eins og það gerði í lifandi dýrinu. Þetta var þakkað tauga- hnoðum sem eru í hjartaveggnum, en nú vitum vér að hægt er að geyma hjartasellur í allt að 2 mánuði og þær halda áfram að dragast saman með jöfnu millibili eins og áður. Og nú vitum vér að það er ekki einungis hægt að geyma lifandi seliur og jafnvel heil líffæri úr dýrurn með' köldu blóði, heldur einnig úr spendýrum með heitu blóði, og þá manninum líka. Það eru einkum 3 menn sem mega teljast frumkvöðl- ar þessara mikilvægu uppgötvana: Harrison, Burrows og Carrel, alt amerískir visindamenn. En einkum er það þó hinn síðastnefndi, sem mestan heiður á skilinn, þvi hann hefir skarað langt fram úr öllum öðrum í því að leiða þessar miklu nýjungar í ljós. Carrel hefir tekist að geyma í margar vikur óskemda og lifandi ýmsa líffærahluta, sem ýmist er skornir út úr lifandi dýrum eða dýrum sem eru nýdáin. Og það eru ekki einungis heilbrigðir partar líkamans, sem hægt er geyma, heldur einnig æxli og meinsemdir, eins og t. d. krabbamein. Það var lengi mestu erfiðleikum bundið að' halda líkamspörtunum óskemdum og varna bakteríum að- göngu að þeim, og svo þurfti að finna ýms skilyrði sem sellurnar heimta til að geta dafnað vel. Þær þurfa t. d.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.