Skírnir - 01.12.1914, Side 75
Æfisaga mín.
411
ávalt átt lögheimili á Minna-Núpi, þó eg hafi oft dvalið
mestan hlut ársins í öðrum stöðum.
Þó eg væri þegar i æsku mest hneigður til bókar,
var eg þó alls ekki frábitinn búsýslu. Þvert á móti hugsaði
eg oft um þess konar efni. Það var hvorttveggja, að eg
hafði aldrei neina von um að komast í »hærri« stöðu,
enda langaði mig mest til að verða b ó n d i, það er að
segja: góðurbóndi! Þá stöðu áleit eg frjálslegasta og
manni eiginlegasta. A næstu árunum áður en eg veiktist,
var eg á ýmsan hátt farinn að búa mig undir bóndastöð-
una og hafði allfjörugan framtíðarhug í þá átt. Þá ætlaði
eg mér að verða jarðabótamaður, eins og faðir minn eða
fremur, og áleit mig nokkuð hagsýnan í þeim efnum.
Líka vissi eg, að »það er ekki gott að maðurinn sé ein-
samall«: eg hafði þegar valið mér »meðhjálp«; en eigi
vissu það aðrir menn. En svo veiktist eg, og þá slepti
eg allri framtíðarhugsun, eg bjóst eigi við að verða lang-
lífur, og allrasízt að verða sjálfbjarga. Því vildi eg eigi
að stúlkan mín skyldi binda sig við ógæfu mína. Kom
okkur saman um að hyggja alveg hvort af öðru, og láta
aldrei nokkurn mann vita neitt um það, er okkur hafði
milli farið. Og þó eg kæmist’a bataveg aftur, þá fekk eg
aldrei neina von um búskap eða hjúskap. Þó höfðu veikindin
eigi svift mig ástarhæfileikum.' Veturinn 1878 kendi eg börn-
um í Vatnsdal í Fljótshlíð. Þar var þá vinnukona er
G-uðrún hét, Gísladóttir, ættuð undan Eyjafjöllum; hún
þjónaði mér, og féll vel á með okkur. Um vorið fór hún
að Núpi iFljótshlið til Högna hreppstjóra Olafssonar. Þar
fæddi hún sveinbarn veturinn eftir og kendi mér en eg
gekk við. Hann heitir Dagur. Var hann fyrst nokkur
ár á Núpi með móður sinni, og reyndist Högni hreppstjóri
okkur hið bezta. En er Dagur var á 6. ári, tók Erlingur
bóndi Olafsson á Sámstöðum hann til fósturs. Olst hann
síðan upp hjá honum og konu hans, Þuríði Jónsdóttur,
fyrst á Sámstöðum og síðan í Árhrauni á Skeiðum. Reyndust
þau honum sem beztu foreldrar, og Páll son þeirra, er
tók við búi eftir föður sinn, sem bezti bróðir, og sama er