Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1914, Síða 95

Skírnir - 01.12.1914, Síða 95
Eitfregnir. 431' til yngri systur hennar, Kristrúnar, og lofast henni. Fá heitrofin' svo mjög á Hrafnhildi, að hún fyrirfer sér á skáldlegan og hrika- legan hátt. Víðáttumikið er efnið í leikritinu ekki. Það er einn harmleik- ur ástarinnar enn. Alt er hér gagnþrungið af ást, ástargleði eða ástarhörmum. Það er næstum því sem ekki só til annað en ást, loftið er fult af henni, klettarnir bergmála af henni. Leikhetjurnar virðast ekki samsettar á þann hátt, að þær búi yfir mörgum ósam- kynja þrám og sundurleitum þörfum — þær virðast hyggja á lítið nema ástir. En alvara lífsins, þungbryn og harðlynd, ríkir i þessum leik um mannlegar ástir með öllum breyskleika þeirra, hviklyndi, undarlegum refilstigum, dutlungum, hógómagirnd, gá- leysi, lóttúð og örlögþrungnum afleiðingum í eftirdragi. Kýtt er efnið í leiknum ekki, hvorki sú örlagasaga, sem þar er sögð, uó birta sú, er brugðið er yfir hana. T. d. minnir hór all- margt á »Leonarda« Björnsons. Við bar það og, að eg við lestur- inn mintist Jóhanns Sigurjónssonar og leiktaka hans. En búning- urinn er sumstaðar frumlegur, sýningarnar sumar, t. d. klettasýningin í seinasta þætti. Er auðskilið, að dönskum lesendum þyki nýnæmi á slíku. Er sá þáttur líka næsta áhrifamikill og verður vart lesinn nema með óþreyju og óróa. I leiknum er gnótt fagurra mynda og líkinga, sem allar bera skaldgáfu höf. ótvírætt vitni. Þátturinn af Hrafuhildi og grasakonunni er og gullfallegur, sem austurlenzkur skáldadraum- ur, einkum seinast. Það leynir sór og ekki, að höf. hefir veitt mörgu eftirtekt í skógarlundum og klettaþröngum ástarinnar. Aðalleikhetjan er Hrafnhildur, og er það ekki nýtt, að íslenzk skáld skemti sór við að skapa konur með stórfenglegu skaplyndi. Mun það ekki eitt auðkenni íslenzkra bókmenta, bæði að fornu og i}ýju, hve kvenlýsingar takast þar haglega og fagurlega? Hrafn- hildur er ástheit og blíð, dansar af ástarsælu og fyllir alt unaði, bæði menn og blóm. En hún er líka skaphörð og stórlát og hug- uð sem skjaldmær. Fornt og íslenzkt er nafnið, forn og íslenzk er lundin líka. Það er ekki eingöngu nafnið, sem minnir ofurhtið á Brynhildi Buðladóttur, heldur og skap hennar og tiltektir. Krist rún er gagnólík systur sinni, eintóm bógómagirnd, og af þeim sök- um heppin í ástum, leikur sór að fjöreggjum mannanna með kaldri lundu, hlífir þar ekki svo mikið sem systur sinni og virðist ger- sneydd allri æðri viðleitni, sem títt er um þessháttar konur. Að öðru fólki í leikritinu kveður nauðalítið. Vinur höfundarins, hr. kaupmaður Ólafur Thors, hefir kostað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.