Skírnir - 01.12.1914, Síða 103
Ritfregnir.
439
liljómi sögunnar. Vér hefðum því fyrir löngu átt að eiga góða Nor-
egslýsicgu á íslenzku, með uppdrætti af Noregi og þeim örnefnum
á er þar voru á sögutímunum.
Nú hefir þjóðskáldið okkar skrifað þessa þætti. Efni þeirra
er : 1. Tildrög Islandsbygðar. 2. Taldir landnámsmenn eftir norsk-
um fylkjum, með stuttum lýsingum landshátta. 3. Tildrög þjóð-
veldis íslendinga. 4. Fyrirmyndir, eða kostir og brestir hinnar fornu
siðmenningar. 5. Um skáldskap fornskálda, og meira um galla hins
forna fyrirkomulags. 2. þáttur er um leið eins konar Noregslýsing,
og þó hún só ekki fullkomin, þá getur hún verið mikill styrkur
þeim sem lesa sögurnar og ekki eiga aðgang að útlendum bókum,
því þáttunum fylgir líka LTppdráttur Noregs hins forna á tveim
blöðum. Er það sá hinn sami er Norðmenn hafa aftan við alþýðu-
•útgáfu sína af Heimskringlu, og þá hann só ekki allskostar skýr,
þykir mér líklegt að margir verði honum fegnir. — I hinum þátt-
unum drepur höf. á margt. Beinist hann víða að þeim sem ekki
sjá nema björtu hliðarnar á hinni fornu siðmenning vorri, og telur
hana í mörgum greinum alt annað en fyrirmynd, enda só nú öldin
önnur: »Hið forna barbarí er óðum að hverfa, en bæði þekking
og nauðsyn að draga saman hugi og hendur allra heimsins þjóða
— jafnóðum sem hin miklu nýju verkefni og verkfæri hærri alls-
herjar siðmenningar þekkjast og reynast betur«. En síðan þetta
var ritað er stríðið komið, og mun sumum sýnast sem framförin só
þá helzt í því, að nú getur einn maður banað margfalt fleirum
með einu handtaki en söguhetjurnar gátu, þó vór tökum ýkjurnar
í sögunum trúanlegar.
Margir eru sprettir fjörugir í bókinni eins vant er úr þeirri átt.
G. F.
Þjóðmenjasafn fslands. Leiðarvísir eftir Matthías Þórðarson
-forstöðum. safnsins. Rvík. Kostnaðarm. Jóh. Jóhanensson 1914.
Þessi leiðarvísir bætir úr brýnni þörf. Með hann í höndunum
getur nú hver sem vill gengið tilsagnarlaust um Þjóðmenjasafnið
•og fengið stutta og laggóða fræðslu um það sem þar er að sjá;
verður hann því eflaust kærkominn öllum þeim er vilja fræðast þar
um líf og listir forfeðra vorra. Aftan við eru gripaheitin í stafrófs-
röð, og gæti eg trúað því, að sumt unga fólkið ræki sig þar á ein-
hver orð sem það skildi ekki, en þá er ekki annað en lesa um það
i leiðarvísinum og fara svo á safnið og skoða hlutinn.