Árrit Prestaskólans - 01.01.1850, Síða 30
30
Skírsla um ástand
skal hann og stýra kennslunni og skal honum til
aðstoðar í kennslu á prestaskólanuni settur annar
fastur kennari.
Kostnaftur til prestaskólans er í sama brjefi tal-
in að verða þessi:
laun og húsaleiga forstöðumannsins .... 1350 rd.
laun hins kennarans........................ 600 —
fyrir bækur, húsbúnað, eldivið og til ljósa . 200 —
óviss útgjöld ............................. 250 —
alls 2400 rd!
og er þar ákveðið, að fje þetta skuli greiða með
skindiláni á sama hátt og kostnaðinn til latínu-
skólans.
Einnig eru 3 ölmusur, hver að upphæð 80 rd.,
af styrktarsjóði Kaupmannahafnar háskóla lagðar til
prestaskólans jteim til hjálpar, er í hann gánga og
]>urfa þess helzt við.
Að öðru leiti fól konúngur háskólastjórnarráði
þvi, er þá var, að bera upp fyrir sjer til samþyktar
nákvæmara frumvarp til reglugjörðar fyrir presta-
skólann, þegar hann hefði tekið til starfa, sam-
kvæmt reglum þeim, sem hjer er getið, og búið
væri að fá álitsskjöl og uppástúngur frá forstöðu-
manni og tilsjónarmönnum prestaskólans.
Jessar grundvallarreglur fyrir skipulagi presta-
skólans eru að miklu leiti bygðar á frumvarpi því
til reglugjörðar fyrir hann, er biskupinn hafði tek-
ið saman og í sameiníngu við landstjóra sent til
Kaupmannahafnar með póstskipi árið 1847, og að
nokkru leiti, einkanlega viðvíkjandi kennslugrein-
unum, er í þeim haft tillit til álits þess, er kenn-
endur í guðfræði við háskólann höfðu látið i ljósi.
Jegar prestaskólinn hafði staðið árlángt, ritaði for-
stöðumaður hans — samkvæmt fyrirmælum konúngs-
brjefs þess, er áður var getið — stiptsyfirvöldunum