Gefn - 01.01.1870, Page 40
40
kæmi. Bismark sté þegar á hest sinn og reið við nokkra
menn til móts við keisarann; Bismark og allir hans menn
tóku ofan, er þeir mættust, og stóð Bismark með hattinn í
hendinni á meðan hann talaði við Napóleon. Hús eitt lítið
var þar í nánð; þángað gekk Bismark og vildi vita hvort
þeir gæti ekki talast við þar inni, en Napóleon settist á
stein einn fyrir utan húsið. Inni var fullt af vefnaði og
skrani, svo þar varð ekki verið; var því komið út með tvo
stóla og þar á settist Napóleon og Bismark til vinstri hand-
ar keisaranum, en riddararnir lágu þar skamt frá á gras-
flöt nokkurri. Bismark hefir sjálfur sagt frá þessum hlutum.
Aðalumtalsefnið var friður, en keisarinn kvaðst ekki hafa
neitt vald til að semja frið, þar sem drottníngin og ráðið
réði í París, Basaine hefði ótakmarkað hervald, en sjálfur
hann genginn á náðir Prússakonúngs. Bismark sagði að
þá væri eigi til neins að tala um stjórnleg efni; Napóleon
kvaðst vilja tala við Vilhjálm konúng sjálfan, en Bismark
synjaði þess, fyrrenbúið væri aðrita undir uppgjafarskrána.
Stóðu þeir síðan upp og gekk Bismark á konúngs fund, en
Napóleon gekk til sinna manna og ráðgaðist við þá. Svo
er sagt að þetta hafi verið ógurleg stund: fyrir utan borg-
ina allt í kríng óvígur her og hinn grimmasti og sigur-
sælasti, mörg hundruð hlaðinna fallbyssa og púðurvéla, allt
reiðubúið til að meiða og drepa margar þúsundir manna,
er ekkert viðnám gátu veitt, en hefðu óefað orðið að einum
kekki og blóðlifrum fyrir skothríðinni, þar sem svo margt
var saman komið að varla varð fetað um borgarstrætin; en
inni í borginni var Prakkaher, þrútinn af reiði út af upp-
gjöfinni, svo við sjálft lá að hershöfðíngjarnir yrði barðir
eða drepnir. Loksins varð samníngi komið á um uppgjöfina,
og var ritað undir skrá þessa um hádegisbil; skyldi allir
foríngjar fara frjálsir með vopn sín, en eigi bera þau móti
pjóðverjum í því striði, en allur herinn — hér um bil sextíu
þúsundir — skyldi leggja niður vopn sín og gerast mans-
menn þjóðverja; þeir skyldu og hafa borgina og allan her-
búnað og hertýgi er þar væri.