Gefn - 01.01.1870, Qupperneq 80
80
Sú ánægja, sem jeg hef af því, að hefja mig upp til sann-
leikans, er innifalin í því, að sannleikurinn ekki sé all-
staðar, heldur á einhverjum vissum stað; og þessvegna get
jeg ekki fundið þessa ánægju, nema því að eins að guð sé
persónulegur. Eins er því varið með alla vora jarðnesku
sælu; ef sælan væri allstaðar, þá væri engin sæla; engin
gleði væri, ef sorg væri ekki til. Ef oss þætti jafn mikið
koma til alls mannkyns, þá þætti os ekkert varið í neinn
mann og vér værum tilfinníngarlausir. |>á væri ekkert,
sem ræki eptir oss eða laðaði oss; því sá sem vill vera
allra, hann er einskis. — Jeg geri mér enga hugmynd um
mynd guðs, þó jegímyndi mér hann persónulegan; en það,
að allar þjóðir hafa gefið guði nafn og mynd, það sannar
einmitt að menn hljóta að hugsa sér hann sem persónu.
Nú hið seinna. VTér getum alls ekki ímyndað oss neina
almenna fegurðarhugmynd, og enga almenna sann-
leikshugmynd. Slíkt er til fyrir guði, en ekki fyrir mönn-
um. Guð hugsar ekki, en hann er; hann sér ekki, eu hann
er; hann heyrir ekki, en hann er. (Existentia Dei est actus per
excellentiam eða »actus purus«) 011 sú vizka, sem vér köllum
hugsunarfræði, Logik, er dauft merki upp á skarpleik mann-
anna; og þeir sem kunna hana bezt, þeir hugsa líka verst
og vitlausast. j>etta er margreyndur sannleikur. Móses,
Esaias, Davíð, Hómer, Aristophanes, Plato, Shakspeare,
Goethe, Byron, Snorri Sturluson eða Sighvatur — ætli þeir
hafi ekki kunnað Logik? — Flestir sem komu frá háskólun-
um með höfuðið fullt af þessum auði, kunnu varla að skrifa.
Yeruleg og sönn og tignarleg hugsun er þess vegna ekki á
því bygð, að menn »kunni« að hugsa, þvf það verður ekki
kennt; en »hugsunarfræðin« er komin af því, að sumir smá-
vitríngar hafa viljað skygnast inní, hvernig hinir miklu
andar hafi flogið til sannleikans; en þeir sjá það ekki samt.
Schiller segir: »Mit abgelegter Feuerkrone steht sie (o:
Urania) als Schönheit vor uns da«; og seinna »was wir
als Schönheit hier empfunden wird einst als Wahrheit