Fréttir frá Íslandi - 01.01.1874, Blaðsíða 4

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1874, Blaðsíða 4
4 l>JÓi)IJÁTÍÐIN. íslcndingar ætluðu að halda hátíð sína í ágúst, og þótti því síður fœrt að bregða því, sem von var margra göfugra gesta frá öðrum löndum. Norð- lingar, Austfirðingar og nokkrir á vesturlandi, rjeðu eigi að síður af, að halda þjóbhátíð 2. júlí heima í hjeruðum. Nú skal skýra frá hinum helztu og stœrstu hátíðahöldum landsmanna eptir skýrslum þeim, sem föng eru á; er þá fyrst að geta hátíöa þeirra, er haldnar voru í júlí, en helztar þcirra voru: á Stykkishólmi, á pingeyr- um, á Reynistað, á Oddeyri og við Atlavík í Hallormsstaðaskógi. pá er að segja frá þjóðhátíð Reykvíkinga og aðalhátíðinni á þingvöllum í ágúst- mánuði, og þar með frá konungsförinni og fundi þeim, er haldinn var á þingvöllum á hátíðinni; og að síðustu skal stuttlega getið um önnur há- tíðahöld landsmanna í ágústmánuði, og svo hlutdeild íslendinga crlendis og útlendinga í þjóðhátíð vorri. ÞJÓÐHÁTÍÐ SNÆFELLINGA og HNAPPDŒLA var haldin á Stykkishólmi 2. dag júlímánaðar. Var reistur veizluskáli mikill ímiðj- um bœnum til hátíðarhaldsins, og skreyttur utan og innan; margar merk- isblæjur voru reistar ofan á veggjunum, en á mœninum blöktu 3 veifur á háum stöngúm, hin danska og norska sín til hvorrar hliðar, en hin ís- lenzka í miðið; sú veifa var blá að lit, og dreginn á valur hvítur; aðinn- an var skálinn allur skreyttur lauf- og blóm-vöndum, en á gafli voru 4 spjöld, og var nafn konungs ritað á hið efsta, en nöfn Ingólfs, Skallagríms og þórólfs landnámsmanna á hin þrjú neðri; þar á bak við sáust sverð, axir og bogar, og önnur vopn með fomaldarsvip. I skála þessum var veizla mikil haldin um daginn, og stóð hún langt fram á nótt; var þar margt til skemtunar haft, og mörg minni drukkin. Svo er sagt, að í samsæti þessu hafi verið talsvert á annað hundrað manna. Daginn eptir hjeldu nokkrir hinna helztu samsætismanna fund með sjer þar í bœnum til að ráðgast um, hvernig mætti gjöra þessa hátíð sem minnisstœðasta; komu þá framýmsar tillögur manna, er sumpart lutu að sœmd og gagni landsins í heild sinni, og sumpart hjeraðsins sjerstaklega. pess skal getið, að nefndir voru kosn- ar til að semja reglur fyrir framkvæmd og samtökum til þess að efla fram- farir i búnaði og menntun þar í hjeraðinu. pJÓÐHÁTÍÐ HÚNVETNINGA var haldin á pingeyrum2. júlí. Hún hófst einni stundu eptir dagmál með því að skotið var 12 fallbyssu- skotum, og jafnskjótt voru dregnar upp veifur þrjár, ein á tumi steinhúss þess, er þar er nýreist, og var þar á dreginn fálki á flugi; önnur á aust- urstafni þess, hvít með rauðum krossi; og þáhin þriðja á húsabœnum með mynd af fálka sitjandi. pá var hringt til guðsþjónustugjörðar, og gengið til kirkju; flutti Ólafur prófastur Pálsson frá Melstað þar tölu. Að lokinni guðs- þjónustugjörð gengumenn til steinhússins í skipulogri fylkingu, 4jafnframt, karlar fyr, en konur síðar. I steinhúsinu var svo um búið, að tvennir bokkir voru í-eistir umhverfis með báðum hliðum og fyrir stafni, en dúklögð borð fyrir framan þá. Skáli var tjaldaður við suðurhlið hússins, og voru þar veitingar hafðar handa hvcrjum, er vildi. pá var fundur settur í stcin-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.