Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Page 15
ATVINNUVEGIR.
15
stig R, en norðanlands yfir 20 stig R). Aptur voru hríðará-
fellin mjög tíð, og stundum ofsaveður. Mest voru veðrin í miðj-
um janúarmán., og aptur 3. febrúaímán.; tók þá upp skip,
og fjc hrakti víða nyrðra. Annars var veðráttufarið nokkru
vægara á Norður- og Austurlandi, en sunnan- og vestanlands,
enda voru hríðarnar optast nær af útsuðri. í stöku útkjálka-
sveitum, svo sem á Ströndum og sumstaðar í þingeyjarsýslu,
var þó fram eptir vetrinum allgóð tíð, eins og stundum komur
fyrir í hörðum vetrum. Framan af marzmánuði gjörði sum-
staðar nokkurn bata, en hann stóð eigi lengi, og um næstu
mánaðamót eða páskaleytið gjörði harðasta áfellið. J>á kom hin
grimmasta stórhríð, er stóð í nokkra daga, og náði nálega yfir
allt land. En upp frá því fór veðuráttan að batna, og nálægt
miðjum aprílmánuði eða skömmu fyrir sumarmál brá algjört til
bata. I>ó hlánaði hægt og seint, því að vorið var fremur kalt
hvervetna. íshroði hafði lengi vetrar verið fyrir Norðurlandi,
en aldrei varð hann landfastur, og loksins rak hann frá í
júnímánuði, og gjörði þá hlýindi um tíma. 12. júní gjörði
ofsaveður mikið fyrir sunnan og vestan land. í veðri þessu
hrakti bát undan Jökli vestur yfir þveran Breiðafjörð, og lenti
hann á fjórða degi í bœjarósi á Rauðasandi; mennirnir komust
lífs af; er svo sagt, að sjóhrakningur þessi sje einn hinn mesti,
er sögur fara af. Hásumarið var fremur kalt víðast hvar, en
þó var veðrátta mjög misjöfn. Sunnanlands og vestan gengu
þurrkar og hagstœð veðurátta lengi sumars, en norðanlands og
austan var mjög úrkomusamt; snjóaði þar optlega til fjalla, og
stundum niður í byggð. 24. júlí og nóttina eptir var dœmafá
rigning sumstaðar norðanlands. Hlupu þá víða skriður úr Qöll-
um til stórskemmda fram til Dala í Eyjafirði, og í Yxnadal og
Hörgárdal; tók sum engi af , en tún og bithagar skemmdust
meira og minna. Að áliðnu sumri eða snemma í september-
mánuði skipti algjörlega um veðuráttu. Gjörði þá þurrviðri og
hlýindi norðanlands og austan, en sunnanlands og vestan brá
til rosa og rigninga. Haustið var víðast umhleypingasamt og
veðrátta næsta óstöðug. Veturinn lagðist mjög snemma að á
Norður- og Austurlandi, og jafnvel komu harðindi sumstaðar
fyrir veturnætur; 6. okt. og aptur 10. og 11. okt. gengu stór-