Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Síða 20
20
ATVINNUVEGIR.
ist þar þ<5 ágætlega, einkum í Bolungarvík við ísafjarðardjúp á vetr-
arvertíðinni, og aptur á ísafirði um sumarið. Tyrir ölluNorður-
landi varhlaðfiski flesta tíma ársins, en þó minnst að tiltölu fram-
an af sumri og að áliðnu hausti, enda hamlaði stundum gæftaleysi
og sumstaðar beituskortur. Á Austfjörðum afiaðist mjög vel
flestar árstíðir; minnst aflaðist þar um vorið, en aptur ágæt-
lega um haustið. fangað fóru um sumarið 2 þilskip xrrEeykja-
vík með 4 báta, og öfluðu á þá sjötíu til áttatíu þúsundir af
þorski og ýsu. Önnur þilskip öfluðu einnig vel víðast livar. —
Hákarlaafli á þilskipum varð hvorvetna í góðu meðallagi.
Eekar urðu nokkrir sumstaðar norðanlands. Á stöku
stöðum rak hvali og höfrunga um veturinn. Trjáreki nokkur
varð á Langanesi og í fústilfirði eptir nýár, og mikill á Strönd-
um um haustið.
Laxveiðar í ám urðu í góðu meðallagi víða, og sum-
staðar afbragðsgóðar, einkum í Hvítá í Borgarfirði og f>verá í
Mýrasýslu. Laxveiðafjelag var stofnað í Reykjavík, í þeim til-
gangi að auka laxveiðarnar, og sjá um, að laxinn yrði sem bezt
friðaður samkvæmt landslögunum. í fjelag þetta gengu þegar
margir menn með nokkru peningatillagi. Fyrir það fje, er inn
var komið um haustið, var ráðið að útvega laxalóðir, til að
reyna að veiða lax í sjó, líkt og tíðkazt hefur á Borgundarhólmi.
Erlendir aflamenn hafa enn að vanda legið hjer við
land til fiskjar, og flestir afiað vel. f>annig voru Færeyingar
fyrir AustQörðum á 12 skipum, og öfluðu þeir á þau fram undir
400000 fiska á 8 til 10 vikum. Svo taldist til, að ágóðinn af
afla þessum hefði til jafnaðar orðið 30 af hundraði. Frakkar
og Englendingar höfðu hjer enn talsverðan fiskiskipaflota
kringum land; fer yfirgangur fiskimanna þessara að sögn sívax-
andi. Hin frakknesku fiskiskip hjeldu sig sem vant er einkum
fyrir sunnan fand, og gjörðust býsna nærgöngul. Hve nær sem
fiskur leitaði úr djúpi inn á grunnmiðin í Faxafióa, þá voru þau
komin þar tugum saman, drógu net landsmanna í hnúta eða
glötuðu þeim algjörlega, og skemmdu þannig bæði veiðarfœrin
og spilltu aflabrögðunum, sem sízt átti við í fiskileysistíð þeirri,
sem þá var. Stundum lágu fiskiskip þessi svo mörgum tugum
skipti í landhelgi og jafnvel eigi meir en fjórðungmílu frálandi;