Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Page 37
MKNNTIR.
37
fjelag til viðreisnar íslandi og eflingar menntun þess og at-
vinnuvegum. En meðan eigi er fullsjeð, liversu fer um samtök
þessi, skal það látið bíða, að skýra frá þeim nákvæmlega. Hvort
fjelag þetta nær festu, er enn óvíst, en viðleitnin ein vottar
þann bróðurhug, er vissulega á skilið viðurkenningu af hálfu
allra íslendinga.
fjóðvinafjelagið hefur í sumum hjeruðum iandsins
haft lítinn byr, en aptur hafa sum hjeröð sýnt því mikla rausn
og sóma, einkum ísafjarðarsýsla. Undir lok alþingis voru í
Reykjavík haldnir aðalfundir fjelagsins, og hjetu alþingismenn
fjelaginu fylgi sínu. far var ályktað, að leita samskota um allt
land til að ljúka við þjóðhátíðarskuldina eða kostnað þann, er
reis af liátíðarhaldinu á J>ingvöllum 1874, og nokkuð var enn
ólokið af; og í annan stað var ályktað, að bjóða mönnum að
ganga í fjelagið með 2 kr. tillagi á ári gegn því að fá allar árs-
bækur fjelagsins, er nema skyldu rúmlega því verði. Jón Sig-
urðsson frá Kaupmannahöfn var endurkosinn forseti Qelagsins,
en hann kvaddi til varaforseta alþingismann Tryggva Gunnars-
son. í forstöðuuefnd fjelagsins voru kosnir: Björn Jónsson, rit-
stjóri ísafoldar, Jón Jónsson landritari og J>orlákur Johnsen
verzluuarmaður.
M a n n a I á í.
Af merkismönnum þeim íslenzkum, er ljetust á árinu,
skulu lijer taldir nokkrir hinir þjóðkunnuslu. Fyrstan má telja
Pjetur Guðjohnsen, eigi fullra 65 ára að aldri (f.28/n 1812).
Svo sem kunnugt er, var hann lengi söngkennari við latínu-
skólann og organleikari við dómkirkjuna í Eeykjavík, en auk
þess gegndi hann skrifarastörfum hjá stiptamtmönnum og lands-
höfðingja. Hann hafði og mörgum öðrum störfum að gegna,og
meðal annars átti hann um tíma setu á alþingi, og var eitt
sinn settur sýslumaður. Hann var atorkumaður hinn mesti og
afburðamaður um marga hluti, en einkum er liann ágætur orð-
inn af útbreiðslu sönglistarinnar hjer á landi, er hann hóf hjer
fyrstur manna, að kalla mátti, og efldi með stakri alúð á marg-
an hátt. Sjálfur var hann ágætur söngfrœðingur og einnig gott