Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 4
6
fram á seinni aldir, sést festarhringur af járni, festui' í bergsnös með
blýi. Þessa sögn lagði eg að líku við sögnína um festarhring í
hömrunum í Hvítskeggshvammi sunnan í Geitahlíð. — Sá hringur
hefði þó hlotið að vera stórum eldri en íslands bygging, en Segl-
búðahringurinn yngri en hún. — Nú sagði Jón, sem áður er nefnd-
ur, mér ákveðnari sögn um hringinn þar. Sagði hann, að næst á
undan sér hefði búið á Seglbúðum Olafur Olafsson, Olafssonar járn-
smiðs Þórarinssonar. Hefði Olafur Þórarinsson flutt sig frá Hólmi í
Landbroti að Seglbúðum og þeir langfeðgar búið þar síðan. Olafur
vngsti hefði sagt sér, að afi hans, Olafur smiður, hefði heyrt, er
hann kom þangað, sagt frá hringnum, að hann væri í næst-fremstu
klettsnös í austurhamrinum við Gilið, en nýgræðings jarðvegurinn
þá kominn upp fyrir liann, svo hann sæist ekki. Olafi hefði þótt
ilt að láta hringinn ónotaðan, hel'ði hann leitað hans og fundið hann
og smíðað úr honuin. Ekki grunaði Jón Olaf, fyrirrennara sinn, um
ósannsögli. Og sjálfur var liann talinn sannoi'ður maður og að öllu
hinn vandaðasti.
Nokkrar búðatóftir, afarfornlegar, hygg eg mig hafa fundið á
bölunum fyrir austan Gilið, og eina, ef ekki tvær, fyrir vestan það.
Eins og ekki er furðn, eru þær mjög niðursokknar, svo að á þeim
er varla um veggi að ræða, eu nð eins útflatta, lága bala og laut í
milli. Þó var víða, sem vottaði fvrir upphækkunum þar, sem gafl-
arnir höfðu verið. Sú tóftiii, scm eg fann fvrst, er fyrir vestan
Gilið, suður frá vcsturenda liins gamla bæjar, fyrir neðan brekkuna,
sem þaðan liggur upp nð bænum, — þar er valllendisjaðarinn i
skálinni einna breiðastur. — Sú tóft er 14 faðma löng og rúml. 2
faðma breið. Rnunar er ckki iuegt að ákveða breidd þessara tófta
nákvæmlega. (Þessi tóft er merkt 1 á uppdrættinum). Suður frá
henni gengur lítill bali til suðurs Líkist hann búðartóft að öðru en
því, að lautin eftir miðjunni sést ekki með vissu. Það er ekki ólíkt
því, að jafnað hafl verið yfir hana. Þó slepti eg að telja hana með
búðatóftum. Nokkru sunnar i brekkunni, þár sem hún tekur að
beygjast til austurs, er akurgirðing nál. 15 faðma löng og 7 faðma
víð. Ofan við hana, uppi á brekkubrúninni, er lítil tóft, sem snýr
dyruin frá girðingunni. Eleiri akurgirðingar, eða sáðreitir, eru fyrir
ausitan gilið. Eigi líta þær jafnfornlega út, sem búðatóftiinar. (Á
uppdrættinum eru þær merktar smáum bókstöfum, og er sú, sem nú
var getið. merkt a). — Á hamrinum fyrir austan Gilið sjást engin
mannaverk. En á 2 stöðum er þar að sjá, sem gróið sé yfir hraun-
sprungur. Og þess sér víðar vott, en er alveg ólíkt mannaverkum.
Austur af hamrinum hallar ofan í langa og breiða lág. í henni