Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 63
65
5655. U/l2
5656. U/l2
5657. 17/l2
5658. 17/ /12
5659. 19/ /12
5660. 19/ /12
5661. 19/ /12
5662. 19/l2
5663. 3°/12
5664. 51/i2
Jón Jónsson, Hafsteinsstöðum (afh.): Skór (?) úr vað-
máli, mjög fúinn.
Sami: Leðurbútur, leifar af fornum skó(?).
Nr, 5655—56 fundust í jörðu í Vík í Sæmundarhlíð
vorið 1908, hjá mannabeinum og hrossabeinum að
sögn.
Kvenbelti úr flaueli með bláum bryddingum; á því eru
11 silfurdoppur tígulmyndaðar, stampaðar, og silfurspenn-
ur með víravirki.
Skírnarbúfa svört, útsaumuð með ýmislega litu silki og
og silfurþræði.
Karlmanns-kollhúfa úr svörtu flaueli með skúf úr gylt-
um þræði, öll baldýruð með silfruðum og gyltum þræði,
útlent verk. Hefir verið lengi í Clausensætt i Stykkis-
hólmi.
Peningapoki svartur með glerperlum og gullskúfum á
böndunum, alsaumaður og settur gyltum snúrum og plöt-
um. Á honum eru stafirnir S. S. og ártalið 1825.
Upphaldahringjur, steyptar úr kopar.
Upphaldahringjur og ádrættir, úr kopar.
Handrit á pappír: Kongs Christians Ens Fimta Hálof-
legrar minningar Norsku Log mikinnpart eptir orðunum
útlogd. Skrifud á Olafsvolium og Lundi, og endud þann
13da Febr. 1794. — Handritið mun því vera skrifað
af sira Engilberti Jónssyni.
Tóbakspungur íslenskur, með nokkrum tóbaksbaunum í;
átt hefii' fyrrum Þorsteinn læknir Jónsson í Vestmann-
eyjum.
Vídalínssafn.
Professorsfrú Helga Matzen, ekkja Jóns Vídalíns konsúls hefir
þegar sent safni þessu nokkra af þeim gripum, er því tilheyra, en
hún hafði áskilið sér að hafa undir höndum meðan hún lifði (sbr.
Árb. 1908, bls. 56). Gripirnir komu 28. maí 1908 til safnsins og eru
þessir:
Silfursignet lítið með stöfunum J. E. S.
AgatsMnga lítil í silfurumgjörð, fundin í Vestmannaeyjum um
1880.
Reimanálar fjórar-, 2 eiga saman.
Deshús tvö úr silfri.
9