Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 26
28
hringjum í Preceedings of the Societ. o. Ant., Edinb., Vol. III. New
Series (1881), bls. 80. — Þó eru þær hringjur opnar á miðri plötu, en
það hefir þessi vafalaust ekki verið. Ef til vill hefir hringurinn
sjálfur verið öðruvísi lagaður; það verður ekki séð með vissu af
þeim parti hans, sem er á brotinu, þar eð hann er svo snarbeygður
saman. Þorn eða löng nál hefir að sjálfsögðu leikið á hringnum, ef
þetta hefir verið hringja, enda virðist bólan efri vera máð af því
hægra megin og sömul. eyrað þeim megin, sem inn að hringnum veit.
Það virðist engum vafa geta verið undirorpið að þetta sé fornt
gangsilfur. Líkir fundir hafa fundist erlendis áður um öll Norður-
lönd og víðar1), enda kemur þetta alveg heim við það sem forn-
sögur vorar og fleiri fornrit skýra frá. Þetta silfur, sem hér er
‘) Sbr. S, Miiller, Danm. Olds. II. 663—664 (bls. 72); sami, Yor Oldtid 682 o. s.frv,