Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 50
Skýrsla
um viðbót við Forngripasafnið og þau söfn, er þvi
eru sameinuð, árið 1908.
iTölumerki hlutanna, dagsetning við móttöku þeirra og nöfn þeirra manna,
er þá hafa gefið suma, eru prentuð framan við].
5462. *h
5463. n/i
5464. uh
5465. 16/i
5466. 16/i
5467. 16/1
5468. 16/l
5469. 16/l
5470. 16/l
5471. ,6/l
5472. 16/l
5473. ,#/l
Forngripasafnið.
Samfelluhnappur úr silfri með víravirki að framan,
kornsettu, og umhverfis; stimplaður I E.
Rúmfjöl útskorin með einkar sjaldséðu letri, mjög fall
egu. Á henni er vers það er oft sést á rúmfjölum:
»Yertu yfir og alt um kring« o. s. frv.; upphafsstafirn-
ir G S S og 0 0 D (með höfðaletri), i h s í miðju, og
ártalið 1773.
Eirkanna með tveim eyrum, þrem fótum og krana úr
kopar. Lok vantar. Mun vera tekanna og lainpi hafa
íyigt.
Sessuver flosað, með Ijósbrúnum stjörnum.
Sessuver flosað, dökkleitt, akanþusblóm í hornunum.
Stafirnir H F D A (þ. e. H. F. d[óttir] á) eru flosaðir í.
Flauelsdúkur lítill, hefir verið rósrauður, með miklum
ísaum, heiðgulum; ef til vill partur af skafraki (sbr.
nr. 2961).
Metaskálar úr látúni.
Metaskur úr kopar, vegur allur 16 lóð heill, en vantar
eitt metanna.
Kola fornleg úr járni; stýlinn vantar. — Þær eru sjald-
séðar nú.
Sokkabönd, þétt og fallega ofin úr smágjörfum þræði,
með svörtum, rauðum, hvítum og bláum teinum (sbr.
2761).
Lyklahringur úr kopar.
Hnappur úr silfri, steyptur, með gagnskornu verki.