Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Blaðsíða 53
55
5508. 18/3
5509. 25/b
5510. 25/g
5511. 25/3
5512. 25/3
5513. 28/„
5514. “/4
5515. *U
5516. 25/4
5517. KU
5518. 25/4
5519. V5
5520. V#
5521. 2/5
5522. 2/5
Beltisborði úr flaueli með rauðum silkibryddingum, silf-
urbaldýraður. Austan úr Mýrdal.
Skauttreyja gömul, silfurbaldýruð, úr svörtu klæði, með
rauðleitum borðum.
Skautkragi úr svörtu flaueli, með silfurvírsknipplingum.
Upphlutur svartur, með silfurbaldýruðum flauelsborðum
að framan, rauðum bryddingum og grænum borðalegg-
ingum; millulaus.
Upphlutur svartur, með rósóttum borðaleggingum og
rauðum bryddingum; millulaus
Mortér með stautli, hvorttveggja steypt úr kopar 0g
rent; mun fyrrum hafa verið i eign Páls prófasts Páls-
sonar (á Elliðavatni, konrektors), er var prestur i
Kirkjubæjar klaustri 1823—61.
Vínstaup úr silfri, er átt hefir Bjarni amtmaður Thórar
ensen. Á það er grafið, að líkindum af Bjarna sjálfum,
B. Th. 1833, og greinar með laufum beggja vegna við.
Oddur Hermannsson, stud. jur.: Snúður úr beini (hnútu),
með gati; til að hafa á bandinu þá er spunnið er eða
tvinnað á rokk.
Stefán Jónsson, Munkaþverá: Söðuireiði frá 1809, hefir
tilheyrt móður gefandans og hún fengið reiðann eftir
nöfnu sína Þóreyju Jónsdóttur Sigurðssonar á Urðum í
Svarfaðardal. Með miklu og fallegu verki.
Sami: Hnakkreiði gamall, með skrautlegu verki, gröfnu.
Sami: Kvenmanns-brjóstmynd útskorin og máluð; að
líkindum af prédikunarstól úr Munkaþverár-kirkju. Sbr.
nr. 966.
Höfuðband (»koffur«), baldýrað með gullvír, hvítt.
Handlína úr hvítu hörlérefti, útsaumuð ágætlega raeð
margvíslega litu silki og er útsaumurinn jafn fallegur
beggja vegna; í miðju er orðið IHSY (þ. e. JESU, með
grísku letri) og kóróna yfir, en umhverfis stendur í fer-
hyrning: ÞU ERT MISKUNIN MEST, MIER DAS0M
GLEDIIH:F:
Matskeið úr silfri með flötu skafti og löngu blaði og er
grafið beggja vegna; stimpluð 50 (þ. e. 1750?).
Upplutur úr svörtu vaðmáli 0g er saumað mikið og
þykt neðan við; hann er með silfurmillum steyptum,
rósóttum leggingum rauðleitum og rauðum bryddingum.