Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Side 15

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1909, Side 15
17 laut eftir miðjunni. Þó þetta kunni að vera tóft, ér hún of Íítil til að vera eftir sel og því heldur eftir bæ. Hún stendur á gilsbakka og er grashvannnur neðan undir. I honum sá eg á 2 stöðum örlitl- ar smátóftir, næstum sem eftir börn. Datt mér í hug, að hér kynnu að hafa verið hjásetukofar, — því hér er sumarbeit góð. Bygð hef- ir hér naumast verið. e. Granagils dysjarnar. I Arbók Fornl.fél. 1895 heflr Pálmi Pálsson skólakennari ritað um forn leibi fyrir ofan Búland, er áreið- anlegir menn höfðu skýrt honurn frá, að upp hefði blásið þá nýlega. í sumar, (1909) kom eg á þann stað, sem þar var um að ræða, og bjó til uppdrátt af honum. Vona eg að hann sé betri en ekkert til að gefa hug- mynd um afstöðuna. Og til frekari skýringar læt eg nokkur orð fylgja honum, jafnvel þó eg hafl engu verulegu við grein hr. P. P. að bæta. Fjallabaksvegur hinn forni liggur yfir þvert fyrir ofan alla bæi í Skaftártungu nema Svartanúp. Er vegurinn enn all glöggur þar víða. Þar, sem hann sést austast, liggur hann yflr svonefnda Meltungnahœð og ofan af henni suðaustan megin, þá niður að Mel- tungnaá, og suður yflr hana. Lengra sést hann ekki, því þá tekur við uppblástur. Meltungnahæðin er framhald af Þorláksstaðafjalli til norðausturs. Þó er skarð þar í milli, þaðan kemur Meltungnaá, lítil spræna, sem rennur austur og ofan til Skaftár. Sunn- anundir Meltungnahæðinni fellur hún ofan um hamragljúfur mikið. Það er kallað Meltungnaárgilið. Inni í því eru grashvolf og má vel leynast þar með hesta. Er þar sérlega vel fallið til fyrirsáturs, því litlu innar liggur hinn forni vegur i krókum ofan af hæðinni og beygist svo fram að ánni við gljúfursmynnið. Mikil umferð heflr þar verið fyrrum, því margar og djúpar eru göturnar. Nú eru þær uppgrónar, því nú er hér engra manna leið. Milli vegar- ins og gljúfursins er gróf mikil í brekkunni, mynduð af tveim jarð- föllum, er loks hafa náð saman og siðan gróið upp. Norðan til mjókkar grófin og verður að graslaut, sem neðst beygist vestur að ánni neðan við gljúfrið en ofan við göturnar. Þessi gróf er Grana- gil. Þar sem vegurinn kemur ofan af brekkunni verður fyrir grjót- hóll mikill eða ás, bæði hár og brattur. Þá er menn fóru veginn frá brekkunni suður að ánni, höfðu þeir hólinn á vinstri hönd. Að ánni nær hóllinn þó ekki þeim megin, en þar verður lægri rani suðvestur úr honum, miklu lægri en hann og þó nokkuð hár. Þann rana höfðu menn svo á vinstri hönd næstum að ánni. Vest- an og sunnan í honum er fögur grasbrík við veginn og blasir við sjónum úr gljúfrinu. Liggur vegurinn milli hennar og Granagils. Bríkin er fýsileg þreyttum ferðamönnum að hvílast þar og sofna. 3

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.