Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 2
4
Valgarðs. — Hins verður einnig að gæta, að hið nýja goðorð og
þinghald í því átti ekki að breyta og gat ekki breytt hinu lögákveðna
skipulagi goðorða þeirra þriggja, er fyrir vóru í Rangárþingi, og þing-
haldi þeirra að Þingskálum, þar sem háð vóru jafnan hin löglegu
skapþing þeirra allra saman, vor og haust. Með hinu nýja goðorði
fylgdi enginn rjettur til neins slíks, hliðstæðs þinghalds. Verksvið
hinna nýju goða var mjög takmarkað að alsherjarlögum og er svo
að sjá, að mannaforráð þeirra hafi lögum samkvæmt varla getað
verið nema að nafninu. Það er því nokkuð ólíklegt, að þingmenn
þeirra Hofverja hafi sagt sig allir úr þingi með þeim og getað sagt
sig löglega í þing með Höskuldi, og það svo að þeir feðgar hjeldu
ekki lengur uppi búð sinni á Þingskálaþingi (sbr. orð Valgarðs við
Mörð). Eigi að síður hefur Höskuldur á einhvern hátt getað haft
nokkurskonar mannaforráð og haft einhverjar samkomur með mönn-
um sínum. Goðorðsmaður varð hann og sveitarhöfðingi. Hann var
bróðursonarsonur Marðar gígju, annars af 2 mestu höfðingjunum í
Rangárþingi við lok landnámsaldarinnar; Mörður gígja var mestur
höfðingi »á RangárvöIIum um hans daga, so þat var hvert kallat lög-
leysuþing, er hann kom eigi til« segir í Landnámabók. Og nú komst
Höskuldur í tengdir við Svínfellinga, aðalhöfðingjana í nágrannaþing-
inu; Hildigunnur var sonardóttir Þórðar Freys-goða, sem var mestur
höfðingi austur þar um sína tíð. Ætt Höskulds var fjölmenn og óefað
hefur hann verið vinmargur. Lögspakur hefur hann sennilega verið,
fóstursonur Njáls. Fóstri hans hefur sjálfur ekki verið goðorðsmaður,
en átt þó að líkindum sæti með goðunum í Iögrjettu; sennilega verið
sá eini af goðorðslausum mönnum úr Rangárþingi, er þar hefur átt
setu á miðpalli um sína daga. En það hvorttveggja mælti enn með
því, að Höskuldur fóstursonur hans tæki upp þinghald. Vel má hann
einnig hafa átt sæti í lögrjettu sem umráðamaður Njáls og svo mátti
fara, að hann næði setu á miðpalli eptir hann. Viðurnefnið Hvítanes-
goði er naumast tilbúningur einn, heldur bendir það til, að hann hafi,
eins og segir i sögunni, komið á þinghaldi á Hvítanesi í sambandi
við goðorð sitt. — Töluverð kímni liggur í viðurnefninu og manni
kemur til hugar, að það hafi ekki gengið orðalaust af í hjeraðinu,
þegar þessu var tildrað upp, — vegna hjegómagirni Hildigunnar. —
En skammær verða ófin öll og eins fór um þetta, sem þar að auki
varð, eptir því sem sagan segir, öllum, sem hlut áttu að máli, til
skaða og skapraunar fyr og síðar. Meira að segja hlauzt af þessu
bani Höskulds og brenna Njáls og sona hans, ónýting brennumálsins,
bardaginn á Alþingi o. s. frv.
Þar sem nú eru líkur til, að Höskuldur hafi haft einhverskonar