Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 9
11
átt þingmenn fyrir austan Þjórsá. Eins gátu höfðingjar austan ár, átt
tilkall til manna fyrir utan á. Þykir mér því ekki með öllu ófært að
bæta þeirri gátu við, hvort ekki hefur líka af sömu orsökum verið
settur þingstaður, mjög nærri sama vaði að sunnanverðu (sjá Árb. Flf.
1892, 60). Ekki óliklegt, að sumir hafi þurft að gegna einhverjum þing-
störfum, skemtisamkomum og öðrum erindum á þessum báðum þing-
stöðum. Og hafi því verið svo að kalla daglegar samgöngur milli þeirra
—- á ferju ef ekki hestum — meðan þingin voru háð á þessum stöðum.
Holtsvað hafa menn sett á fjórar ár: Þjórsá (Páll í Árkv.), Þverá
(Skúli á Keldum, í óprent. gr.), Fiská (Sig. Vigf. og Br. J.) og Rangá
eystri (Kaalund). — Og enn hefur verið talað um Austvaðs-holts-
vað1) á Rangá ytri.
Af öllum þessum stöðum þykir mér Þverárvaðið, nálægt Duf-
þaksholti, einna líklegast til þess að geta verið Holtsvaðið gamla, og
þar næst Fiskárvaðið. Ekkert af hinum vöðunum finst mér geta komið
hér til greina, sem HoItsVað. Ekki tekur það tali, að FIosi riði þreytt-
Um langferðahestum í einni lotu, yfir meira en 3 sveitir þverar —
frá Vorsabæ að Þjórsá — og léti Ingjald á Keldum, jafn óvissann
liðsmann, elta sig yfir 2 sveítir.
Ef Flosi hefði farið yfir Rangá eystri á Reynifellsvaði, eins og
Kaalund gerir ráð fyrir, þá gat hann engann mannaveg farið í rétta
átt, nema um túnið á Keldum. Hann hefði þá komið til Ingjalds, og
ekki þurft að senda honum orð að koma til móts við sig. Ef Ingjald-
ur hefði þá ekki verið heima, er valla líklegt, að hann færi að elta
Flosa langar leiðir »við 15. mann, og alt heimamenn sína«. — Líkara
að I. tæki með sér hrausta karla, vel vopnaða á óþreyttum hestum,
hvað sem í skærist um ráðabrugg þeirra Flosa móti Njálssonum, en
að hann tæki svo stórt til, einungis af virðing og vinfengi við Flosa.
Ingjaldur var viðlíka vant við kominn á báðar hliðar, og vildi nú
sýna Flosa að munað gat um hann, með og móti — við 15. mann.
Nú vil eg nefna ennþá einn stað, og gera nýja tilraun til að
leysa gátuna um Holtsvað. Verð eg þá fyrst að skýra ofurlítið frá
aðstæðum, og styðja svo með líkindum.
FIosi er á leið til alþingis, skömmu eftir víg Höskuldar Hvíta-
1) Austnadsholt er villandi nafn, held eg, og þvi óbrúklegt. Það er marg-
vísiega ritað, eftir mismunandi framburði latmælis Austvatns: Ástvass, Ostvas,
—vats, —vaz, —as. Og svo reynt að leiðrétta í Aust v a ð s holt, er hvergi finst
í fornum heimildum. í elsta máld. Odda: Ostvaz holt; oftsíðar — vatz- og—vads-.
Enginn lækur, á eða vað, í hæfilegri nálægð, til nafngjafar, en bærinn er við
austasta vatnið á »Þjórsárholtum«, er því var rétt að nefna Austvatn og bæinn
Austvatnsholt, þvi bæði er vatnið og bærinn á holti. (Sbr. Árb. Flf. 1923, 20.)