Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 11

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 11
13 sátu fyrir Gunnari á Hliðarenda. En vígi hans, Gunnarssteinn, mjög nærri vaði þessu og þá fast við ána, svo ekki varð sókt að frá öllum hliðum. — Það er af ókunnugleika og hreinn misskilningur, sem sumir hafa sagt, að Gunnar hafi gert sér krók, eða þurft að krækja, frá bardaganum niður á Reynifellsvað yfir ána. Þarna munu enn sjást leifarnar af götunum austanvert við ána, en munu horfnar nú úr gamla jarðveginum, sem blásið hefur upp á öðrum stöðum. (Skúli á Keldum hefur athugað forna veginn hér, og víða um Rangárvöllu). Flokkurinn var nú kominn á hæfilegri stundu — nál. hádegi? — og í ágætasta stað til áningar, á víðfeðma vallendi, svo nærri Keldum sem leiðin lá, og laust við örtröð heima undir garðinum mikla, er þá mun hafa afgirt tún og engjar á Keldum — og enn sjást merki til. Ferðahestar þurfa nú hvíld og haga góðann, en mönnum er ekki þörf að matast að svo komnu (og ekki var flakkað um bæi, eftir kaffi og brennivíni i þá daga). — Ungum mönnum og ókunnum lék forvitni á að skoða vígi Gunnars og dysin, sem þá voru nær 24 (en 25?) ára gömul, og að heyra sanna, nákvæma og ljóslifandi frásögu um alla atburði or- ustunnar. Þar á staðnum festust þeir vel í minni gunnhreifra manna. Flosi kaus nú heldur að hvíla sig, en fara sjálfur, og »sendi orð Ingjaldi« að finna sig. Til þess þurfti ekki meira en léttan mann á frískum hesti, rúman fjórðung stundar hvora leið. Eftir hádegishvíldina var hæfilegur áfangi fyrir Flosa upp að Holtavaði á Þjórsá, og hentugt þar til næturgistingar. Á betri stað varð ekki kosið, til þess að »bíða Sigfússona«. — Þetta var þeirra beinasta leið, og bezta næði. Miðjavega milli Keldna og Árbæjar, ofan til við vaðið að norðan- verðu, er hæð mikil, sem heitir Árholt. Þykir mér það líklegt, að vaðið fengi nafn af hæð þessari — því aldrei hefur bær staðið þar nærri — og héti það í fyrstu Árholtsvað, en væri þó í daglegu tali nefnt Holtsvað. Það er og Iíklegra, að nafn gleymist á því vaði, sem sjálft glatast, og aldrei verður farið mörgum öldum saman, heldur en á þeim stað — eins og Fiská — sem altaf er fær og ávalt notaður. Milli Fiskár og Rangár á þessum stað, er Reynifellsland. Heitir þar Hólmur eða í Hólminum, þ. e. í »HóImslöndum« þeim, sem Hrólfur rauðskeggur nam (Landn.). Neðar heitir Krappi, þar sem hraunið verður krappara og hólóttara, og mjótt er orðið milli ánna, áður þær koma saman. En Vallartangi heitir norðan við Rangá, frá Árholti heimundir Keldur, og þar sem leiðin lá frá vaðinu n. að lítilli á, er hét Sandgilja. Hún kom úr Vatnafjöllum og rann í Keldnalæk( austanvið túnið þar. Upptökin sjást, en af yfirborði er vatnið farið,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.