Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 31
33
rjett undir Arnarhól skamnit fyrir austan rjett þá, er nú er notuð, en
hún hefur staðið á eystri bakka hinnar fornu Laxár innri og getur
því ekki komið til greina, enda mun hún miklu yngri en rjettin í
Hraundal. Laxá innri rann til forna inn svo kallaðar Engjar, því nær
inn undir Saura, beygði svo vestur á og rann út í Hofsstaðavog;
komu árnar saman þar sem þær fjellu út í voginn, og eru þar enn
kölluð Ármót. En innri ánni var veitt seint á 18. öld vestur í hina ána,
þar sem skemmst var á milli þeirra, hjá svonefndu Markholti.
öndverð-eyri. Hinn forni bær að Öndverðri-eyri hefur staðið við
Kolgrafafjörð vestanverðan, þar sem Eyraroddi fer að beygjast til
austurs. Bærinn hefur staðið frammi á bakkanum; þar eru rústir miklar,
en ekki unt að greina sundur einstaka hluti þeirra, enda var byggður
bær ofan á þær, fyrir nær 20 árum, og efni í hann að nokkru stungið
upp úr hinum fornu tóftum. Bær sá stóð skamma stund.
Um túnið, sem hefur verið allstórt, hefur verið garður og sjer
fyrir honum öllum. Mjög margar tóftir eru til og frá um túnið og
kringum það.
Norðan-til í túninu er girðing, sem er um 50 faðma á lengd og
8 faðma á breidd; önnur girðing er syðst í túninu; hún er 21 faðmur
á lengd og 20 faðmar á breidd; í norðausturhorni hennar er stór
tóft. Er hún mjög ógreinileg; mældist mjer hún 6 faðmar á lengd og
5 faðmar á breidd. Jeg get þess til að þessi girðing sje hinn forni
kirkjugarður, hvort sem þessi tóft í horni hennar getur verið kirkjutóftin.
Við vesturhlið þessarar girðingar er tóft, er mjer virtist talsvert nýlegri,
hún er 4V2 faðmur á lengd og 2 faðmar á breidd; er þverveggur því
nær miðju tóftarinnar.
Nokkrum spöl suður frá bæjarstæðinu, á allháu barði, er mann-
virki, er mjög líkist fornum haug. Svo sem 4—5 hundruð föðmum í
suður þaðan er rúst hringmynduð, líklega forn stakkgarður.
Mjer hefur verið sagt, að i fjörunni, fram af bæjarrústunum,
sjáist leifar af grjótbryggju; en er jeg var þar var hásjávað, svo
að jeg gat ekki aðgætt, hvort það er rjett.
Rústir á Krossnesi. Á Krossnesi í Eyrarsveit (Krossanesi við
Brimlárhöfða) hefur bærinn verið færður. Stendur hann nú talsvert
austar og er mýrarsund milli hins forna túns og þess sem nú er. Jeg
skoðaði hinar fornu tóftir; hefur þar verið mikil bygging, en eins og
víða verið síðar byggt á tóftunum. Þarna var byggt fjárhús, sem nú
3