Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 36
38 Þó er þetta nafn enn látið gilda um engjarnar frá Flóagafli og Kallaðar- nesi. En »nes« þeirra út í ána er ekki orðið meira en svo, að aflíð- andi bugða ein eða ölnbogi verður að ánni i vestur frá Kallaðarnesi. Nafnið Straumnes er gamalt — orðið til um eða fyrir 1200. — Og nafnið eitt má sanna, að þá er það var gefið, hefur straumþungi ár- innar lagst að nesinu, og það því farið að brotna. Þar hefur vitan- lega verið sama flatlendi — og slægja — með leirmoldarbökkum. Af þessu tvennu má ráða það, að mjög er langt síðan áin byrjaði eyði- leggingaratvinnu sína. — Líklega fyrir landnám.. Vafasamt að hún hafi síðan tekið sér nokkurt hvíldarár; verið afariðin, og þó ótrúlega afkastahæg. Verður hér sagt nokkuð gjör af því fáa, sem kunnugt er um at- ferli Ölfusár. Ekki er þó unt að rekja lengra en yfir rúmlega 2 aldir. í Jarðabókinni 1709, er túni og engjum á Kallaðarnesi lýst svona: »Túninu grandar Ölvessá í leysingum og vatnagangi á vetur, þegar áin ryður sig og hana stíflar þar á ofan, hleypur hún að kalla þvert úr farvegnum yfir landið bæði á þetta tún og önnur hér nærliggjandi í hverfinu, og ber í þau sand og möl og grjót, og fordjarfar grasrót- ina allvíða með stórjökum, sem þetta flóð spýtir fram. Hér fyrir utan grefur áin sig undir jörðina og spýtir upp stórum jarðflettum, og er so mikið bragð að þessu, að þar koma neðan úr jörðunni með þessu vatni jakar ofan úr Ölvessá (eftir því sem menn meina)1). og hefur þetta margoft til borið í næstliðin 36 ár, en þó helst á því hlje orðið nú í næstliðin 8 ár. Enginu grandar sami ágangur úr Ölvessá með grjót-, sands- og jakaburði, sem allvíða spillir rótinni«. Eftir að búið er að lýsa í sömu Jarðabók 8 bygðum hjáleigum (með kirkjujörðum, Lambastöðum og Kálfhaga) og 2 eyðihjáleigum (Magnúsfjós og Stöðulkot), kemur þessi árétting: »NB. Alt þetta hverfi, heimastaðurinn, kirkjujarðirnar, báðar og hjáleigurnar allar nema Hreiðurborg, liggja undir voveiflegri hættu og hræðilegum háska á vetur fyrir Ölvessá í vatnagangi og bráðaleysinguin, þegar áin setur í sig stíflu gagnvart eða fyrir neðan bæina, og hleypur þá alt ármegnið . . . kringum bæina með so skelfilegum jakaburði, að ekki er annað sýnilegra . . . en bæina kunni í burt að taka alla i þessu þorpi nema heimastaðinn og Kálfhaga. Rennur og so vatnið inn í bæina, so menn geta með öngvu móti varið, og þar til heygarða, fjós og önnur út- 1) Jakarnir hafa vitanlega borist að ofanjarðar, en vatníð við árvöxtinn komist í hraunhóla, sigið um hraunið undir jarðvegi, og af straumþunga spýzt þar upp sem lægst lá og veikast fyrir. Gusan gat velt jökum við óg sprengt upp svell. — Viðar eru barlómsýkjur í þessari ágætu bók.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.