Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 38
40 Stöðulkot, önnur eyðihjáleigan, bygð fyrir manna minni í heima- túninu, hefur í eyði legið í næstu 8 ár . . . Túnið brúkar nú heima- staðurinn, og nokkurn part engjanna, og stendur þar nú fjósið frá heima- staðnum, sem hjáleigan var . .. fært undan þessum árgangi... þegar áin hafði brotið 10 faðma langan vegg af heygarðinum, var þá og kominn svo mikill farvegur af ánni miilum fjóss og bæjar, að ófært var á hestum fyrir vatnsmegni og svo á skipum fyrir straum og jakaburði«. Þetta gamla fjósstæði og heygarður — er verið hefur á útjaðri túns — er nú, með álnum umtalaða, horfið að öllu leyti í árfarveginn. En nærri árbakkanum nú, skamt frá Kallaðarnesbænum og lítið austar en i norður, er hólkorn, sem Fjóshóll heitir. Og hefur fjósið sennilega verið flutt þangað1). Neðar við ána, með stuttu millibili, eru líka 2 hólar litlir, og mynda nef út í ána, því grjót í þeim hefur veitt straumi og jökum meiri fyrirstöðu en moldarbakk- arnir, er molnað hafa í vik, á milli þeirra. (Þar eru flóðgarðar þeir, sem getið er neðanmáls). Bæði þessi nef hafa verið lágir hólar á víðlendum túnfleti, og stóð sín hjáleigan á hvorum. Sér enn leifarnar af svo sem hálfum bæjarústunum. Á efra nefinu, rétt í hánorður frá Kallaðarnesbænum, voru Miðhús, en á hinu Lambastaðahjáleiga. Varla hafa kot þessi verið sett nærri brotnuðum bökkum í fyrstu. Báðum er þeim orðið hætt fyrir ánni 1709, og þó hefur áin ekki komist lengra en sagt var, á þessum stað, í 218 ár. En vafalaust hefur hún verið hraðvirkari á öðrum stöðum. í norður frá þessum gömlu Miðhúsum — um Vs út í ánni — er lítill hólmi, sem heitir Laxhólmi. Má vel hugsa sér, að hann hafi verið þarnamegin landfastur í fornöld — og máske einu sýnilegu leifarnar af sjálfu Kallaðarnesinu, þó ekki verði það nú sannað. (Sjá síðar um ferjustaðinn). Árbakkinn á þessum stað — milli Miðhúsa og Fjóshóls — heitir Krossbakki (og hafa nú flestir gleymt nafni þessu). Sýnist mér líklegt, að það bendi á annaðhvort eða bæði, að á þann bakka hafi verið flutt krossferðafólkið, sem utanyfir kom um margar aldir, til trúarstyrktar og meinabóta hjá krossinum helga í Kall- aðarnesi. Eða þá, að krossinn sjálfur hafi staðið þar í fyrstu (á lágum hól — löngu horfnum)2). Síðan gerð var framanskráð lýsing af landspjöllum í Kallaðarnesi 1) Likast til 1701, þegar Stöðulkot var lagt í eyði, og var það hvergi bygt siðan. En Magnúsfjós, er fyrsta hjáleigan, sem víst er að flutt hefur verið, laust fyrir 1690. Ekkert mun sjást eftir af þvi bæjarstæði. 2) Kaalund segir, að bent sé á Fjóshólinn fyrnefnda, sem þann stað, er krossinn hafi staðið á. (Á öðrum stað mætti segja sitthvað um krossinn, og líka um Ö//ws-nafnið).

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.