Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 47
49
ina Kirkjuíer\a. (Sjálfsagt eftir að kirkja var bygð þar. Kirkja er þar
á 14., 15. og 16. öld.) Máske helst til aðgreiningar frá Kotferju, sem
bygð hefur verið úr Kallaðarneslandi.
Þegar Ölfusið tók að byggjast, hefur orðið meiri þörfin þeim
megin fyrir ferju yfir ána, til samgagna við næstu aðalbygðina og
til aðdrátta frá Eyrarbakka. Áður landnámi var að fullu lokið, er
líkast að verzlun hafi byrjað á Eyrum. Eyranain Lofts gamla í Bæ
gæti vel verið dregið af verzlun hans þar, því varla þarf að efa
það, að hann hafi flutt mjöl í sekkjum ásamt fleiri vörum, er hann
fór þriðja hvert ár til Noregs, eins og síðar flutti Þórólfur sonur hans,
og Bjarni Herjólfsson á Drepstokki annað hvert ár, til 985.
Þegar á þessum árum (eða árla á 10. öld?) má því gera ráð
fyrir, að staðföst ferja sé komin á Ölfusá. Full vissa um þetta fæst
þó ekki fyr en um 1011, þá er Skafti Iögsögumaður á Hjalla »sá frá
ferjunni« hesta Þorgils örrabeinsstjúps í Traðarholti, við ána »nær Kall-
aðarnesi«. Skafti snéri þá heim frá ánni (af hræðslu við Þorgils). En
»kvaðst frétt hafa, að síðar mundu betri kaupin«. (Flóamannasaga 30.
kap.). Af þessum orðum sést bæði hvar ferjan var, og að Skafti hefur
ætlað á kaupstefnu á Eyrarbakka. Ferjustaðurinn var þá, og fyrst
um sinn, á Ferju, að norðanverðu við ána. Bæjarnafn þetta og nafnið
Kallaðarnes, þar á móti, sannar greinilega afstöðuna, svo ekki þarf
hér um fleiri rök. Nesið sjálft hefur áin brotið. Mun það verið hafa
skamt norður frá bænum, sem um margar aldir hefur verið ritað
»Kalldaðarnes«, (vegna fastmælis fornmanna? En nú um nokkra ára-
tugi rita flestir enn verri og óskiljanlegri ambögu: Kaldaðarnes —
sumar elstu og beztu heimildir hafa Kallaðarnes1)- Bærinn á Ferju
stendur spölkorn frá ánni, til landnorðurs rúmlega 2lh km. frá Kall-
aðarnesi, ber leiti á milli, svo frá bænum hefir ekki sést þó fólk væri
í nesinu. Er þvi augljóst, að þaðan þurfti að kalla ferjuna. Þetta
hefur víst oft valdið bið og óþægindum, ekki síst þá er umferðin fór
mjög að aukast útyfir ána. Höfðingjar og ríkilátir menn hafa kunnað
þvi illa, að húka lengi við ána, æpandi eftir ferjunni. Þykir ekki
ótrúlegt, að einhver þeirra hafi gefið það fé, er síðar getur, til þess
að fá ferjustaðinn færðan yfir ána. Fyrir ábúanda á Ferju og eiganda
gat það verið talsverður réttindamissir og fjártjón að tapa ferjutoll-
um, og þurfti þá eitthvað til þess að vinna, að fá þessu breytt lög-
formlega. Alt er í óvissu hvenær þetta varð, og hverjir að því unnu. En
vildi maður leita meðal ábúenda á Kallaðarnesi, þá verður fyrstur fyrir
manni Einar Grímsson (bróðir Barkar á Baugstöðum). Ríkur höfðingi
1) Sbr. ölldungis = öldungis, áður ritað ö//ungis.
4