Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 5
5
grjót á gólfinu, óreglulegt og líklega komið úr gaflinum. Um mitt
hús að vestanverðu var einnig stoðarhella á gólfi, utan-við fletstein-
ana þar. Um 4—5 m. frá suðurgafli var eldstæði á miðju gólfi, 2 all-
miklar, flatar holur. Þær mynduðu nokkurn veginn reglulegan fer-
hyrning, langsum í húsinu, 70X40 cm. að stærð, og nokkrir smá-
steinar eða hellublöð voru á rönd austan-við þær, nyrzt. Hér voru
miklar leifar af ösku og eimyrju á hellunum og umhverfis þær. Frá
þessum eldstæðum báðum hafði kolamylsnan og askan borizt um
2. mynd. Syðri hluti nyrðri rústanna. Séð frá norðurenda.
allt gólfið. Þetta eldstæði á miðju gólfi, þar sem langeldur hefir verið
kyntur, var síðan rannsakað betur og kom þá í ljós hinn uppruna-
legi umbúningur. Voru hellurnar teknar upp og sást þá hið upphaf-
lega eldstæði undir þeim. Það hafði verið með líkri gerð, en botn-
hellurnar litlar, miklu minni en hinar síðari. Það hafði verið mjög úr
sér gengið, er hið síðara var gjört, og ekki nema sumar eftir af þeim
hellum, sem verið höfðu utanvert á rönd. í norðauslur-horni varð
vart við dreifar af guium leir. Kom í ljós, að þar var í gólfinu skál
eða ker úr óbrenndum leir; það var þversum í húsinu, sporöskju-
lagað, 70—95 cm. að þverm. og 25 cm. að dýpt í miðju, en var
íhvolft allt. Nokkuð mun hafa eyðst ofan-af því, líklega um 5 cm.