Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 6
6
Leirinn í því var sumur hvítleitur, einkum í botninum. Finnast þessar
leirtegundir í Úlfarsfelli, sem er rétt vestan-við, og víðar í nágrenn-
inu. — Gert var steinsteypumót af kerinu að innan, svo að hægt sé
að gera nákvæma eftirlíking af því síðar; var mótið flutt til Þjóðminja-
safnsins. — Við suðurbarm kersins var allmikill steinn á gólfinu, ef
til vill stoðarsteinn. Skammt, V2 m., vestur frá kerinu voru hellur á
gólfinu, innan-við dyr, sem voru þar á norðurvegg hússins, er verið
hefir milliveggur milli þessa suðurhluta bæjarins og norðurhlutans.
Hellurnar voru síðan felldar saman í gólfinu vestur-undan og í gangi
3. mynd. Nyrðri rústirnar. Séð norðvestan.
eða dyrum, sem verið hafa á húsinu (bænum), sunnan-við þvervegg-
inn, og hefir sú hellustétt náð um 3 m. vestur-fyrir húsið, og verið
dálítið á ská norðurá-við, einkum yzt. Alls er helluröðin 53/r m.
að lengd.
í þverveggnum varð enn fyrir nokkurt grjót, einkum steinar í
kömpunum beggja vegna dyranna. Þar sem gengið hefir verið norð-
ur í ganginn gegnum þvervegginn, er þrep á honum, syðst 2 steinar
í gólfinu; er gangurinn dýpra eða lægra en gólfið í suðurhúsinu, og
sömuleiðis er allt gólfið í norðurhúsinu um 20—25 cm. lægra en í
suðurhúsinu, er nú hefir verið lýst nokkuð. — Dyrnar á þverveggn-