Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 7

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 7
7 um eru vestast á honum, nær vestur-við vestur-hliðvegg. Þær virðast hafa verið um 70 cm. að breidd, en dyrnar á vesturhliðinni um 1 m. Þverveggurinn hefir verið um 1 m. að þykkt, en dálítið skot eða hvylft hefir verið í norðurhlið hans, því að þar var allmikil aska, svo sem þar hefði verið lítið eldstæði. Við austurvegg, um 2 m. frá þverveggnum, var enn meiri aska, sýnilega eftir eldstæði þar, og nokkrir steinar í og á gólfinu utan-við. En úti á gólfinu þar andspæn- is, mjög nálægt vestur-veggnum og gegnt dyrunum á þverveggnum, var aðaleldstæðið í þessu húsi, norðurhúsi bæjarins. Voru þar 3 4. mynd. Eldstæði á miðju gólfi í nyrðri Iiluta nyrðri rústanna. smáhellur á rönd í góifinu og mynduðu svo sem lítil hlóð, en nokkr- ar hellur voru i gólfinu umkverfis, helzt að norðan og austan. Opið á eldstæðinu var að norðanverðu. Vídd um 18 cm. efst, en minni neðar nú; lengd um 20 cm. — Um 25 cm. sunnar er stór steinn i gólfinu, flatur ofan. Um hann og þar fyrir sunnan, allt frá þvervegg, var breidd þessa hluta hússins 3 m., að því er virtist, en um U/2 m. norður frá þverveggnum hefir húsið víkkað um V2 m. og verið 3V2 allt til norðurenda, en lengdin öll 6 m., svo að allur bærinn hefir verið 14 m. að lengd að innanmáli eða innan stafnveggja, og senni- lega um 17 m. að utanmáli. — Við austurvegg, norðantil, voru all-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.