Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Síða 14
14 tvennar, og þá hlaðið upp í hinar. Bendir það til að húsið muni ekki hafa verið svo stórt í upphafi, heldur bætt norðan-við það, ef til vill þriðjungi. Dyrnar komu helzt í ljós við það, að raðir af gólfhellum lágu út um austurhliðvegg, 1,8 og um 11,3 m. frá norðurgafli, og virtust nyrztu dyrnar hafa verið breiðastar, 1,8 m., en hinar um 1,4 m. Helluröðin eða stéttin inn frá nyrztu dyrunum náði nær inn á mitt gólf. Þar var dálítil upphækkun og i henni stórt leirker úr ó- brenndum leir, en norðan-við það og austan voru samfelldar hellur á gólfi og síðan suður frá því, eftir miðju gólfi, allt suður á móts við næstu dyr: þar tók svo við helluröð út og inn um þær, en þó ekki samfellt að þeirri, sem var langsum norður trá kerinu (um 5 m.).. — Kerið eða leirskálin við norðurenda þess kom í ljós 30. Júlí. Hún var nær kringlótt, um l2/3 m. að þverm., en þó nokkuð bein að vestanverðu á kafla og var þar 10 cm. mjórri yfir. Er ekki ólíklegt, að þar hafi áin sleikt af henni, er hún brauzt inn í tóftina. Hún var mjög flá, í lögum sem sneið af yfirborði kúlu, og var dýptin í miðju 25 cm. Hún var laglega íhvolf og jöfn innan. Hún var skáhöll, lá öll hærra að norðvestanverðu og voru þar engar hellur út-undan henni. Kann þar að hafa orðið breyting á af völdum árinnar. Þar sem hell- ur lágu að skálinni, tóku barmar hennar nokkuð upp yfir þær. Hún var gerð úr gulum og hvítum leir, sem hafði verið grautað saman óreglulega. — Steypt var síðan mót úr steinlími innaní skálina, til þess að gera eptir því eptirmynd af henni í Þjóðminjasafninu; en vegna rúmleysis þar verður því ekki komið við fyrst um sinn. lnn frá syðstu dyrunum og út um þær lá glögg helluröð einnig, en töluverð grjóthrúga var þar ofan-á henni innan-húss, að því er ætla máttir en um mitt hús var austurveggur allur óglöggur eða óljóst, um hvar gólfið hafði náð að honum. Helluröðin náði hér nær því um þvert húsið, og breiddist nokkuð út á langveg þess um það mitt, en náði þar þó ekki alveg saman-við helluröðina í norðurhluta þess. Við rannsókn gólfsins, sem fór fram eftir að rústin var öll kom- in í ljós, svo sem orðið gat (7. Ág., að kvöldi), kom fram, norðan-við þetta hellulag inn frá syðstu dyrunum, annað leirker, gert úr sams. konar leirtegund og hið fyrra. Fyrir sunnan suðurenda helluraðarinn- ar í norðurenda hússins hafði áður fundizt allmikill kökkur af leir,. gulum og hvítum, saman í klessu. Kom nú í ljós, hvernig á honum stóð; hafði hann verið tekinn úr þessu keri, er var nú fundið þarna rétt hjá, og virðist hafa átt að nota hann í kerið í norðurendanum, er það var gert, en verið hætt við, þar eð leirinn hafði blandazt moldu og óhreinindum úr gólfinu. — Þetta síðara leirker var undir kola- og ösku- drefjum, og hafði verið fyllt með mold, með kola-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.