Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 41
Athugunarför á Arnarstakksheiði
29. Febrúar árið 1932.
Ég lagði af stað úr Vik að morgni kl. 10. Veður var bjart, frost-
laust, og jörð alauða. Fylgdarmaður minn var Páll Ólafsson á Heiði,.
fyr bóndi þar. Ég skal fyrst minnast á helztu kennileitin í Vík (daln-
um) og á fjallabrúnunum beggja vegna, og byrja ég þá að austan.
Fremst er Sigdalur, þá Siggil, þá Bratthóll, þá Urðarbrekkur og uppi
yfir Hrafnatindar. Þá tekur við lágur háls og liggur frá fjallinu vest-
ur að Víkurgili, þar sem þjóðvegurinn liggur niður í gilið. Hálsinn
heitir Bæjarhryggur. Sunnan-undir honum er Húsadalur. Bæjarhryggur
er lægstur austur-við fjallshlíðina og heitir þar Kleifir. Fyrir innan
Bæjarhrygg taka við Leyndarhólar og Höttukrókur (við fjallið efst).
Þá tekur við Veðurháls, grýttur múli. Þar fyrir innan Höttubrekkur,
og gnæfir Hatta þar við himin. Fyrir innan Höttubrekkur eru Kjósir
með Kjósarhrygg í miðju, og má fara hann upp á heiðina með hest,
þótt illt sé. Beggja megin Kjósarhryggjar renna lækir. Innan-við innri
. lækinn er svo-nefnd Götuskál, stór dæld í fjallshlíðina, nú urð ein
og moldarflög, en fyrrum að líkum grösugt dalverpi; þar er heiðar-
brúnin lág og hæg til umferða. Skammt fyrir innan Götuskál situr
Arnarstakkur hátt uppi í útnorðurhorni heiðarinnar. Fjallshlíðin milli
Götskálar og Arnarstakks er mjög há og brött, og ólíkleg til um-
ferða fyrrum. Neðan-undir henni er Engigarður. Hefi ég þá lýst
vesturbrún Arnarstakksheiðar og helztu kennileitum austan megin
Víkur. Víkurgil hefst við vestur-túnfót Norður-Víkur og liggur þaðan
í bugðu um túnið og inn fyrir þjóðveginn, þar sem hann kemur nið-
ur í gilið, en þar kemur Selgil fram, og rennur eftir því Selgilsá, og
eru upptök hennar í Engigarðslæk og Kjósarlækjum. Selgiiið sjálft
nær ekki lengra en inn á móts við Veðurháls. Beint á móti Veður-
hálsi og vestan Selgilsmunnans innri er Grafarhóll, gegnt innra
Grafarhöfði i Reynisfjallsbrúnum. Skammt innan-við Grafarhól tekur
við Selhryggur, austan megin við þjóðveginn. Liggur Selhryggur
þaðan og stefnir á Kjósir, og endar við Engigarðslæk. Þá tekur við