Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 45

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 45
45 að utanhéraðsmenn hafi farið um Heiðardal og þá um Kárhólma; það- an inn og austur á Mýrdalssand milli Höfðabrekku-afréttar og heið- ar. En miður trúlegt, að sá, sem ætlaði sér til Höfðabrekku, færi Heið- ardal austur á leið, þó hann ætti kost á miklu skemmri leið um Arnar- stakksheiði. Ég hefi sýntfram á með nokkrum líkindum, að Sigfússon- um bar eigi nauðung til að fara um Heiðardal til þess að geta fengið viðunanlegan áningarstað. Þorvarður Þorvarðsson. Lítil athugasemd. Síðast-liðið sumar ferðaðist ég austur til Víkur og fór 4. Ágúst út í Hjörleifshöfða. Mæltum við Þorvarður prófastur Þorvarðsson okkur þá mót á Höfðabrekku, er ég væri kominn þangað aftur, og riðum við þaðan um Kerlingardal og Bólstað upp á Arnarstakksheiði; ég hafði, áður en ég fór að heiman, séð þessa ritgerð hans, og vildi hann nú sýna mér þá vinsemd að benda mér á hina fornu vegi. Með okkur var m. a. Eiríkur Sverrisson kennari, sem nú er dáinn. Hann var manna fróðastur um allar sögulegar minjar og staðháttu í Mýr- dal. Er mikil eftirsjá að honum að því leyti sem ýmsu öðru, svo ágætum manni. — Við fórum upp á heiðina svo-nefnda Uppferðar- torfu, sem er góðan spöl fyrir innan og ofan Bólstað. Er hún all- brött, og gata engin, en torfan virtist troðin nokkuð, enda vel fær með hesta. Áleit Eíríkur, að þar hefði verið farið mjög fyrrum, en vegna þess, að heiðin er öll blásin þar fyrir ofan, sjást nú engar götur þar uppi að eða frá Uppferðartorfu. Víst er það, að fyrir þá, er fóru um heiðina frá Kerlingardal eða Bólstað og í Götuskál, var beinast að fara um Uppferðartorfu. — Þegar við vorum komnir upp á heiðina riðum við brátt til Fagradalsheiðar og sáum þá göturnar þar, sem stefndu (úr Götuskál) á Fagradalsklif. Er það svo augljós og mikill vegur, að ekki er um að villast, að þar hefir verið fjölmenn almanna- leið. Af Fagradalsklifi sást einnig vel, hvar farið hafði verið þar upp og ofan, sneiðingar í hlið norður- og upp-frá bænum. Frá klifinu héldum við síðan útnorður alla heiði, sveigðum vegleysu austurfyrir blásið fell, er þar verður, og stefndum á Kennarafell, sem er beint suður og upp frá Heiðarvatni. Fórum við að sunnan- og útsunnan-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.